Kylfingur 2018
72 I KYLFINGUR I Hvenær varðstu félagi í GR? Ég byrjaði fyrst í GR 2004 og var í klúbbnum í 3 ár. Kom svo aftur í fyrra vor. Af hverju varð golf fyrir valinu? Frændi minn dró mig til að prófa þetta og ég einfaldlega kolféll fyrir þessu sporti. Hef fengið ýmsa delluna en það hefur ekkert heltekið mig eins og golfið, þó hún sé stundum grimm ást kona. Hver er forgjöfin í dag? 13.6 í þessum töluðu orðum, en fyrir sjáanleg lækkun. Er það ekki alltaf svo leiðis? Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Það hefur gengið á ýmsu. Nokkrum sinnum hefur maður ætlað að hætta þessu alveg eftir ömurlega hringi. Ætli eftirminnilegasti sigurinn í keppni hafi ekki verið þegar ég vann tveggja daga Bylgjumót í GKG um árið með nokkuð solid spilamennsku áminnmælikvarða. Stærsti sigurinn var kannski yfir sjálfum mér þegar mér tókst að hætta að láta slæmt gengi á golfvellinum fara með skapið. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Ætli ég verði ekki að nefna þegar ég fékk golfkúlu í höfuðið í annað skiptið á ferlinum. Var í golferð á spáni með Magga og Dillu í IcegolfTravel og var að spila með þeim hjónum ásamt eigin wkonunni, frú Unni. Ég, Maggi og Dilla stóðum við flötina og ég að segja skemmtisögu á meðan frú Unnur var að undirbúa 50 metra högg inn á flöt. Ég gleymdi að gá að mér og gekk fyrir höggið. Fékk kúluna í kinnina. Ótrúleg heppni að ekkert brotnaði en andlitið á mér tvöfaldaðist að stærð. Þegar frúin hafði jafnað sig eftir þetta, hafði hún á orði að það hafi verið gott að kúlan fór í hausinn á mér en ekki einhvern stað það sem mikilvæg líffæri eru. Einhverju sinni vorum við 4 GRingar að spila Brautarholtið. Vil ekki nafn greina þá, en við skulum kalla þá Geir, Odd og Hrólf, auk mín. Það var hörku keppni, texas scramble þar sem ég og Oddur vorum saman á móti Geir og Hrólfi. Eins og verða vill var talsvert undir í keppninni. Þegar komið var á 18. var allt jafnt. Engin vandræði með teighöggin, ég og minn partner vorum hlið við hlið í lágu röffi hægra megin við braut eins og Hrólfur sem var á svipuðum slóðum. Allir í góðri legu. Geir var um 40 metrum aftar, á braut reyndar, fyrir framan bönkerinn á miðri brautinni. Við Oddur vorum ekki í vandræðum að velja hvorum boltanum ætti að leika en það var annað uppi hjá hinu liðinu. Þeir rifust eins og hundur og köttur um hvorn boltann ætti að nota og það fékkst engin lending fyrr en við Oddur, til að geta klárað þetta fyrir myrkur, beygðum reglurnar fyrir þá þannig að hvor fékk að leika sínum bolta þar sem hann hafði lent. Eins og gefur að skilja, skíttöpuðu þeir holunni og þar með keppninni þar sem hausinn var farinn eftir þrasið. Hefurðu farið holu í höggi? Hef ekki verið að sækja sérstaklega í það. Altént ekki á par 3 holum eins og algengast er. Það er einungis Örn. Metnaðurinn liggur meira í að fá Alba tross en það er farið að nálgast þrá hyggju segja sumir. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Sá eftirminnilegasti er án efa Árni Jóhannesson húsasmíðameistari og bara meistari almennt. Fyrirmynd mín í hvívetna. Hann hefur fundið svarið við spurningunni um tilgang lífsins. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Held mikið upp á La Galiana, svo Alh ama sem er Jack Nicklaus signature völlur hjá Mar Menor. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Mætti vera meiri metnaður við þessi litlu atriði sem stundum vantar upp á á völlunum okkar. Skarpari skil á brautum og röffi, sléttun teiga ag fleiri smáatriði sem gera flotta velli glæsilega. Eitthvað að lokum? Þar sem bakið er ekki upp á það besta þessa dagana, myndi ég þiggja meiri hjálp frá GRingum við að laga boltaför á flötunum. ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Daníel Helgason heildsali:
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==