Kylfingur 2019

I KYLFINGUR I 35 play“ pakkarnir sem boðið er upp á eru settir saman með það að markmiði að gestir fái að njóta þess að vera í hinu fullkoma golffríi, slaka á með fjölskyldu og vinum og það á bestu kjörunum. Félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur njóta sérkjara hjá Sand Valley og geta valið á milli þess að vera í 5, 7 eða 9 daga. Innifalið í pakkanum er akstur til og frá flugvelli, gisting, ótakmarkað golf, aðgangur að æfinga­ svæðum og þriggja rétta kvöldverður í klúbbhúsi alla dagana. Verð til félagsmanna GR eru þessi: Stay & Play 5 = €599 ( 82.734 m.v. gengi 07/11) Stay & Play 7 = €745 (102.900 m.v. gengi 07/11) Stay & Play 9 = €920 (127.070 m.v. gengi 07/11) Paul O‘Connor er tengiliður okkar hjá Sand Valley Golf Resort, hann veitir frekari upplýsingar og tekur á móti bókunum í gegnum netfangið:  paul.oconnor@sandvalley.pl Þetta er annar völlurinn í Póllandi sem félagsmönn­ um gefst nú kostur á að heimsækja á sérkjörum og ljóst að golfferðir eru orðnar tíðari til Austur Evrópu en áður þekktist. Við vonumst til að félagsmenn nýti sér það að kynn­ ast Sand Valley Golf Resort á komandi tímabili.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==