Kylfingur 2019

36 I KYLFINGUR I Sierra Golf Resort í Póllandi ætlar að bjóða félagsmönnum GR upp á áfram­ haldandi sérkjör á „Stay & Play“ pökkum hjá sér árið 2020. Sierra Golf byrjaði samstarf við Golfklúbb Reykja­ víkur síðastliðið vor og hafa margir félagsmenn nú þegar nýtt sér tilboðin og bera svæðinu góðar sögur. Flug­ félagið Wizz air er með beint flug til Gdansk og sér Sierra Golf um að keyra gesti til og frá flugvelli. Golfsvæðið, sem er hið glæsilegasta, er staðsett í ca. 45 mínútna aksturs­ fjarlægð frá alþjóðaflugvellinum í Gdansk og býður upp á 18 holu golfvöll sem hýst hefur mörg stór- og alþjóðleg mót. Herbergi og aðstaða eru öll til fyrirmyndar á svæðinu og er nú einnig verið að taka í notkun nýjar lúxus villur sem staðsettar eru við hótelið og verða tilbúnar fyrir næsta vor. Verð fyrir gist­ ingu í villunum er það sama og á hótelinu og gildir þá hið fornkveðna fyrstur kemur fyrstur fær þegar kemur að því að bóka í villurnar. Á svæðinu er að finna frábært æfingasvæði, vippflatir, glompur, pútt­ flatir og „driving range“ og gestir fá æfingabolta endurgjaldslaust. Á svæð­ inu er einnig lítill tennisvöllur (paddle tennis) og hjólaleiga. Í nágrenninu er einnig mikið af fallegum hjóla- og gönguleiðum og því tilvalið til að njóta annarar útivistar samhliða fyrir þá sem það vilja. Klúbbhúsið er einkar glæsi­ legt, þar er að finna flottan veitinga­ stað, bar, setustofa, spilaherbergi, búningsklefa og fleira sem góðu klúbbhúsi sæmir. Boðið er upp á morgunverð fyrir gesti sem borinn er fram í klúbbhúsi. Sérkjör sem Sierra Golf býður félags­ mönnum okkar upp á innihalda: Gisting í glæsilegum íbúðum. Morgun- og kvöldverður alla dagana. Ótakmarkaður fjöldi bolta á æfinga­ svæði. Ótakmarkaður aðgangur að 18 holu keppnisvelli og 9 holu æfingavelli. Golfkerra. WiFi í öllum íbúðum. Akstur til og frá flugvelli. Hægt er að velja um 7, 9 eða 14 daga og eru tilboð til félagsmanna að finna á heimasíðu GR, grgolf.is. Kamila Pieper er tengiliður okkar hjá Sierra Golf, hún veitir frekari upp­ lýsingar og tekur á móti bókunum í gegnum netfangið kamila.pieper@ sierragolf.pl Tilvalið tækifæri til að skipuleggja vorferðina og vonum við að félags­ menn kynni sér þennan frábæra kost hjá Sierra Golf Resort og nýti þau sérkjör sem boðið er upp á. Sierra Golf Resort býður félagsmönnum upp á áframhaldandi sérkjör árið 2020

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==