Kylfingur 2019

I KYLFINGUR I 73 Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur var haldinn 4. desember 2018 og fór fundurinn að þessu sinni fram á Korpúlfsstöðum. Fundarstörf voru með hefðbundnum hætti, formaður klúbbsins fór yfir skýrslu stjórnar fyrir starfsárið sem leið og gjaldkeri kynnti ársreikning félagsins. Björn Víglundsson var endurkjörinn formaður klúbbsins og hefur nú sitt fimmta starfsár sem slíkur. Ragnar Baldurs­ son sem starfað hefur í stjórn klúbbsins undanfarin 11 ár og sem varaformaður undanfarin 4 ár gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Stefán Már Stefánsson var kosinn í stjórn sem nýr maður. Við þökkum Ragnari kærlega fyrir sín óeigingjörnu störf á undanförnum árum. Hagnaður af starfsárinu var 78 milljónir króna til saman­ burðar við 93 milljónir árið 2017. Tekjur námu alls tæpum 458 milljónum til samanburðar við tæpar 462 milljónir á árinu áður. Golfklúbbur Reykjavíkur annaðist rekstur tveggja golfvalla á árinu ásamt rekstri Bása. Í lok starfsárs er fjárhagsleg staða klúbbsins sterk en eitt af lykilverkefnum stjórnar á árinu var að greiða niður skuldir og er klúbburinn orðinn skuldlaus í dag. Lagðar hafa verið til hliðar 50 milljónir króna í framkvæmdasjóð sem hugsaður er til framtíðaruppbyggingar og er markmið klúbbsins að halda áfram að greiða svipaða upphæð í þann sjóð á næstu árum. Tillögur að lagabreytingum voru lagðar fyrir fundinn sem samþykktar voru samhljóða af fundargestum. Nánar má sjá þær tillögur í skýrslu stjórnar og verða lög félagsins í sam­ ræmi uppfærð á vefsíðu klúbbsins. Tillaga stjórnar til félagsgjalda 2019 var samþykkt en lögð var til 5% hækkun og verður gjaldskrá komandi árs eftir­ farandi: Félagsmenn 27-70 ára, kr. 108.150 Félagsmenn 19-26 ára, kr. 54.075 Félagsmenn 71-74 ára, kr. 80.850 Félagsmenn 75 ára og eldri, kr. 80.850 Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 54.075 * enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár Kynntar voru breytingar sem verða í innheimtu gjalda á komandi starfsári. Golfklúbbur Reykjavíkur mun nú taka upp notkun á Nóra félagakerfi við skráningu félagsmanna og innheimtu gjalda, notast hefur verið við kerfið í skráningum og greiðslum barna og unglinga undanfarin ár með góðum árangri. Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur: STERK FJÁRHAGSLEG STAÐA Í LOK STARFSÁRS

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==