Kylfingur 2020
Flaggstöng (Covid-19 frávik). Óheimilt er að snerta flaggstöngina eða fjarlægja hana úr holunni. Ef flaggstöngin er snert fyrir slysni er það vítalaust. Bolti í holu (Covid-19 frávik). Við þær aðstæður þar sem holan er fóðruð að innan, t.d. með svamphólk, og boltinn er í holunni, en ekki allur undir yfirborði flatarinnar þá er hann í holu. Meiri líkur en minni eru að hann hvíli upp við flaggstöngina og þá gildir regla 13.2c. Þetta tókst mjög vel til og almennt náðu kylfingar að leika 18 holu golf hring á um 4 klukkustundum þó að ræst væri út á 9 mínútna fresti. Með þessari aðgerð bættust við 10 holl á dag á hverjum velli félagsins – Grafar holti, Korpu 18 holur og Korpu 9 holur. Þetta þýddi aukið framboð rástíma fyrir 120 manns á hverjum degi eða alls 840 manns á viku. Í klúbbnum okkar, þar sem allir rástímar eru meira og minna fráteknir allan daginn, mun aði miklu um þetta fyrir félagmenn. Góð aðsókn var í opin mót sem haldin voru á völlum GR í sumar og innanfélagsmótin sömuleiðis. Flest fyrirtæki héldu að sér höndum og fóru sparlega með auglýsingfé og voru fyrir tækjamót þar af leiðandi talsvert færri á fordæmalausa árinu heldur en á venjulegu ári. Þetta hafði tekjumissi í för með sér fyrir klúbbinn en jafnframt fleiri rástíma fyrir hinn almenna kylf ing. Á tímum þar sem sundlaugar og lík amsræktarstöðvar hafa verið mikið lokaðar, afþreying eins og leikhús, kvik myndahús, íþróttaviðburðir og margt fleira hefur ekki verið í boði eða með miklum takmörkunum hefur kylfingum fundist gott að komast í golf. Þar kemst fólk í reglulega hreyfingu, nær að slaka á og leika sér í góðum félagsskap við aðra. Golf er nefnilega íþrótt sem hægt er að stunda nokkuð auðveldlega án þess að mikil hætta sé á smiti, svo framarlega sem fólk fari að settum sóttvarnarreglum. Það er alveg klárt mál að golfið hefur reynst mörgum vel á þessu fordæma lausa ári og verið ákaflega nærandi fyrir bæði líkama og sál. Mynd: Tryggvi Rúnarsson 2018
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==