Kylfingur 2020
12 I KYLFINGUR I Ellert Þórarinsson var ráðinn yfirvallarstjóri Golfklúbbs Reykjavíkur og hóf störf um sl. áramót. Ellert býr yfir mikilli menntun og reynslu í golfvallarfræðum og hefur unnið sem vallar- og verkefnastjóri hjá Golfklúbbi Brautarholts frá árinu 2009. Ellert hóf störf sem sumarstarfsmaður hjá Golflklúbbi Akureyrar árið 1987 og tók í framhaldi ákvörðun um að mennta sig í golfvallarfræðum. Árið 1995 hóf hann nám í „Greenkeeping“ við Elmwood College í Skotlandi og útskrif aðist þaðan árið 1997. Ellert hefur sótt fjölda námskeiða í endurmenntun, t.d. við Landbúnaðarháskólann og hjá Vinnu eftirlitinu. Undanfarin þrjú ár hefur hann setið í undanfara nefnd GSÍ og hefur tvisvar verið valinn vallarstjóri ársins, árin 2016 og 2018. Samhliða þessu hefur Ellert einnig setið í stjórn SÍGÍ frá árinu 2017. Starfsferill Að námi loknu í Skotlandi hóf Ellert störf fyrir Golfklúbbinn Hamar á Dalvík og flutti því næst suður þar sem hann vann sem aðstoðarvallarstjóri hjá Golfklúbbnum Keili á árunum 1998-1999. Leiðin lá aftur norður þar sem hann vann sem aðstoðarvallarstjóri og svo vallarstjóri hjá Golfklúbbi Akureyrar. Árið 2002 fékk Ellert tækifæri á að taka við starfi vallarstjóra hjá Skjeberg Golfklubb í Östfold, Noregi, þar starfaði hann í fimm ár og sótti mikla reynslu af því að starfa í blómlegu umhverfi golf og íþróttasvæða. Leiðin lá aftur heim til Íslands árið 2007 og við tók starf aðstoðarvallarstjóra hjá Golf klúbbnum Oddi þar til hann tók við starfi vallar- og verkefna stjóra hjá Brautarholti veturinn 2009. Með ráðningunni er klúbburinn að leggja metnað sinn í það að gera góða velli ennþá betri fyrir komandi ár, við bjóðum Ellert velkominn til starfa. Ellert Þórarinsson ráðinn yfirvallastjóri Ómar Örn, framkvæmdastjóri GR, býður Ellert Velkominn til starfa. Alvöru skor á Icelandair Cargo mótaröðinni Böðvar Bragi setti nýtt vallarmet 62 högg Það var alvöru skor sem skilaði sér inn á Icelandair Cargo mótaröðinni sem leikin var hjá ungmennum klúbbsins 30. júní í sumar. Dagbjartur Sigurbrandsson kom í hús á 63 höggum og jafnaði um leið vallarmet Andra Þórs Björnssonar. Stuttu síðar kom Böðvar Bragi Pálsson, félagi hans í hús á 62 höggum og setti þar með nýtt vallarmet. Fleiri góð skor skiluðu sér inn þann daginn og er ljóst að mörgum tókst að lækka forgjöfina. Við óskum drengjunum til hamingju með frábær skor og Böðvari Braga til hamingju með nýtt vallar met á lykkjunum Landið/Áin á Korpu. Böðvar Bragi Pálsson
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==