Kylfingur 2020

20 I KYLFINGUR I Hvað varð til þess að þú fórst að leika golf? Ég starfaði sem byggingatæknifræð­ ingur á Húsavík árin 1967–1968 og um vorið 1967 var stofnaður Golfklúbbur á Húsavík og var ég einn af stofnendum þess golfklúbbs ásamt félögummínum. Þar með byrjaði minn golfferill. Ég flutti svo suður aftur í lok árs 1968 og bjó þá næsta árið á Seltjarnarnesinu og spilaði það sumarið í Nesklúbbnum. Um vorið 1970 flytur fjölskyldan inn á Kleppsveg og þá geng ég í GR. Hvernig var með fjölskylduna, var hún ekki öll í golfi? Konan mín fyrrverandi, Björg Jóns­ dóttir, var ekki í golfinu en sumarið 1976 fór elsta dóttir mín, Hólmfríður Jóna, að vinna við afgreiðslustörf í eldhúsi golfskálans undir stjórn sæmd­ arkonunnar Agnesar Haraldsdóttur. Á þessum árum voru ungir menn að vinna yfir sumarið á vellinum og þar á meðal var Ragnar Ólafsson, margfaldur klúbbmeistari GR og Íslandsmeistari, sonur Agnesar. Kynni tókust með honum og Hólmfríði, dóttur minni, og urðu þau par og síðar hjón. Ragnar tók að sjálfsögðu kærustuna (konuna) í kennslu í golfi en það er ekki fyrr en nýlega sem Hólmfríður er farin að stunda golfið af einhverju ráði og býr að fyrstu kennslunni enda segir hún að Ragnar sé besti golfkennarinn. Sonur minn, Guðmundur Ólafur, hóf að spila golf 12 ára og hefur verið félagi í GR síðan og er mjög góður kylf­ ingur. Sonur hans Guðmundur S. og dóttursonur minn, Ólafur Bjarki Ragn­ arsson, spila báðir golf og eru félagar í GR. Dóttir mín, Kolbrún, hefur ekki farið að neinu marki í golfið þótt hún hafi haft góðan kennara en hún bjó um tíma með Úlfari Jónssyni, margföldum Íslandsmeistara. Sonur þeirra, Aron Úlfarsson er í GKG, spilar þar golf og hefur starfað þar líka. Yngsta dóttir mín, Hrafnhildur Helga, sem ég á með seinni konu minn, Fríðu Björgu Aðalsteinsdóttur, fór á golfnám­ skeið hjá Röggu Sig., þá 12 ára og var þar í hópi af krökkum, m.a. Ólafíu Þór­ unni. Ragga bauð hópnum eftir nám­ skeiðið í reiðtúr hjá vinkonu sinni og eftir það var ekki viðlit að halda dótturinni við golfið, hestamennskan tók hug hennar allan og fór hún alla leið í þeim efnum, útskrifaðist frá Hól­ um í Hjaltadal sem reiðkennari og tamningamaður og vinnur nú við það við góðan orðstýr. Hestar og dýr eru hennar ær og kýr að sama skapi og golfið eru mínar ær og kýr! Konan mín, Fríða Björg, hefur tekið sér góðan tíma í að tileinka sér golfið, er nú að feta sín fyrstu spor af einhverri alvöru á golf­ vellinum og gekk í GR á þessu ári. Þannig að ég segja má að það sé alltaf að fjölga í golfhópnum innan fjöl­ skyldunnar. Hvernig stóð á því að þú varðst formaður GR? Við komu mína í klúbbinn kynnist maður mörgum sæmdarmönnum eins og Svan Friðgeirssyni sem þá var for­ maður klúbbsins og Jóni Hjálmarssyni gjaldkera klúbbsins. Ég man nú ekki hvernig það kom til að ég var kominn í stjórn klúbbsins fyrir starfsárið 1972 en í lok þess starfsárs kom Jón heitinn Hjálmarsson að máli við mig og spurði hvort ég væri til í að fara í framboð sem formaður klúbbsins. Ég varð hissa á þessari málaleitan þar sem ég var tiltölulega nýgenginn í klúbbinn. Ég var þakklátur fyrir traustið sem mér var sýnt og ákvað að taka slaginn. Ég fattaði það svo síðar hvernig Jón fór að því að sannfærast um hvort ég hefði eitthvað í formennskuna að gera. Við spiluðum saman í Opna Ísal-mót­ Húsavík 1967. Golfferillinn hafinn. Saman í golfi á Öndverðaenesinu 2017, Ólafur Bjarki Ragnarsson, afinn Guðmundur S. og Guðmundur S. Guðmundsson yngri.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==