Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 21 inu 1972, hann bauð mér heim til sín um kvöldið eftir mótið og drukkum við saman fram undir morgun. Hann var sem sagt að láta á það reyna hvernig ég yrði með víni því framundan stóð til að halda fyrsta erlenda golfmótið á Íslandi og þá þýddi ekki að hafa ein hvern í forsvari fyrir klúbbnum sem ekki gæti höndlað vín. Hann sagðist myndi standa á bak við mig í þessu öllu og styðja mig. En því miður lést hann úr hjartaslagi í febrúar 1973 og var það mikill missir og hans var sárt saknað. Þannig vildi það til að á aðalfundi GR í lok árs 1972 var ég orðinn formaður klúbbsins, 31 árs að aldri. Meðfram annarri vinnu tók formennskan allan minn tíma enda erilsamt sjálfboðastarf, í raun hálfgerð framkvæmdastjóra staða og gaf ekki mikinn tíma til golf iðkunar. Við greiddum allir okkar ár gjald í klúbbinn, eins og aðrir meðlimir, enda veitti ekki af hverri krónu í þá daga til að láta enda ná saman í rekstr inum. Hvað er eftirminnilegast í þínu starfi sem formaður? Það er margt, en ég held það standi upp úr undirbúningurinn og fram kvæmdin við að halda Norðurlanda meistaramótið í golfi á Grafarholtsvelli 1974, sem var fyrsta erlenda golfmótið sem haldið hafði verið á Íslandi. Þetta krafðist mikillar undirbúningsvinnu, sérstaklega við völlinn sem var á herð um Svans Friðgeirssonar. Undirbúning við stjórn og framkvæmd mótsins var unnin af stjórn klúbbsins og þáverandi forseta GSÍ, Páli Ásgeiri Tryggvasyni, sem var afar gott að vinna með. Ég man það að Svan var frekar svartsýnn á að það tækist að koma vellinum í boðlegt ástand fyrir svona stórmót, en honum var sagt að það yrði bara að ganga upp, því eins og Páll Ásgeir sagði, þá var þetta okkar stóra tækifæri til að koma íslensku golfi á kortið, eins og sagt var. Gekk það upp þó flatirnar væru ekki eins og best gerist erlendis, en það gekk jafnt yfir alla keppendur. Við héldum einnig Íslandsmót þetta sama ár, það var um að gera að nýta völlinn í þessu góða ástandi og varð Björgvin Þorsteinsson Íslandsmeistari það árið. Mikið og gott félagslíf var í á þessum árum í golfskálanum eftir mót og yfir vetrartímann, lifandi tónlist m.a. með Skafta Ólafs og Magga Randrup og dansað og sungið fram eftir kvöldi, mikið fjör. Ég lét af formennsku á aðalfundi í lok árs 1974 og við tók Gyða Jóhannsdóttir sem stjórnaði klúbbnum á kvennaárinu 1975 og var ég í stjórn með henni það ár. Eru ekki einhverjir eftirminnilegir félagar sem þú hefur spilað með? Jú, þegar ég var á Nesinu að spila 1969, kynntist ég góðum félögum sem ég spilaði mikið með það árið og árin þar á eftir. Það var Kristinn Bergþórsson heildsali, Lárus Arnórsson heildsali, og Gunnar Pétursson múrarameistari. Það var keppnisskap í okkur og alltaf keppni í gangi þegar við spiluðum. Þá var vaninn að sá sem tapaði skyldi borga hinum smá pening að leiks Viðurkenning. Myndin er tekin á 60 ára afmæli ÍSÍ. Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, veitir viðurkenningar til þriggja manna í Grafarholti, en þeir eru Þórir Arinbjarnarson læknir, Guðmundur S. Guðmundsson og Magnús Jónsson. Úr myndasafni Guðmundar S. Guð mundssonar. Admiralmótið. Íslenskir kylfingar léku gegn bandarískum hermönnum af Keflavíkurvelli í Leirunni 1975. Guðmundur tekur við verð launum úr hendi bandarísks yfirforingja.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==