Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 23 lokum. Ég slapp nokkuð vel við að vera í neðsta sætinu en þetta fyrirkomulag herti mann og gerði að meiri keppnis manni, maður varð að standa sig. Ég man sérstaklega eftir einu skipti þar sem Lárus tapaði, að í stað þess að borga okkur pening í lok leiks, þá gaf hann okkur fatnað sem hann var með í heildverslun sinni, flottan golfjakka, þótti heldur betur happafengur í þá daga. Einnig spilaði ég mikið með John Nolan golfkennara klúbbsins í Betri bolta á móti Friðrik Andréssyni múrara meistara og Erni Ingólfssyni trésmíða meistara, sem báðir eru látnir. Það var mikið fjör í þeim leikjum og fórum við í golfferðir um landið saman og fékk hópurinn nafnið „Flóðhestarnir“ og var keppt um Flóðhestabikarinn og er hann í minni vörslu núna. Varst þú ekki í stjórn GSÍ? Starfsárið 1982 tek ég að mér að verða framkvæmdastjóri GR á launum undir stjórn Svans Friðgeirssonar sem þá var formaður. Verkefnið var að sýna fram á Landslið Íslands sem lék á Evrópumóti 1983. Karlarnir léku í Frakklandi en konurnar í Belgíu. Aftari röð f.v.: Guðmundur S. Guðmundsson fararstjóri, Gylfi Kristinsson, Sveinn Sigurbergs son, Ragnar Ólafsson, Hannes Eyvindsson, Sigurður Pétursson, Björgvin Þorsteinsson og Kjartan L. Pálsson fararstjóri. Fremri röð f.v.: Kristín Svein björnsdóttir fararstjóri, Kristín Pálsdóttir, Ásgerður Sverris dóttir, Kristín Þorvaldsdóttir, Þórdís Geirsdóttir og Sólveig Þorsteinsdóttir. Stjórn GSÍ 1987. Efri röð frá vinstri: Frímann Gunnlaugsson framkvæmdastjóri, Hannes Hall, Ómar Jóhannsson, Guðmundur S. Guðmundsson. Neðri röð: Kristín Pálsdóttir, Konráð Bjarnason forseti og Gísli Sigurðsson. Úr safni GSí.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==