Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 25 skemmtilegt að spila golf í sól og blíðu við þessar aðstæður á skemmtilegum og krefjandi völlum. Við erum búnir að gera þetta sl. 5 ár á haustin og getum bara ekki hætt því. Hefur þú farið holu í höggi? Ég hef farið 4 sinnum holu í höggi, fyrst 1974 á 11. holunni í Grafarholti. Á Landsmóti á 2. holunni í Grafarholti 1992 og þá vann ég ferð fyrir tvo til Florida í viku, það var vel nýtt og skemmtilegt. Aftur á 11. holunni í Grafarholti 2014 og síðast á Kiðjabergs velli í meistaramóti 2016 á 3. holunni. Eitthvað að lokum, hvað mætti betur fara hjá GR að þínu mati? Ég myndi vilja segja það bara að lokum að mikið er ég þakklátur fyrir það að hafa fengið að kynnast golfinu. Þetta er frábær íþrótt sem krefst mikillar úti veru, þolinmæði, sanngirni og tillit semi. Að njóta golfleiksins og félags skaparins er þvílík dásemd og ég vona svo sannarlega að ég eigi eftir að njóta þess sem lengst. Gagnvart GR, þá er alltaf hægt að finna að einhverju, en ég held að ég geti sagt að GR hefur verið vel rekinn félagsskapur í gegnum árin. Nú er stjórnin að undirbúa vinnu við að efla aðstöðu félaganna að vetri til við innanhússæfingar, endurbæta Grafar holtsvöllinn í áföngum og margt fleira. Það er frábær vinna og varla hægt að fara fram á meira, alla vega ekki í bili. Ef eitthvað er, mætti kannski nefna, frá mínum bæjardyrum séð, að taka tillit til aldurs félaganna, bæði í lífs árum og félagsárum innan klúbbsins og gefa afslátt af félagsgjöldum í sam ræmi við það. Aðili sem er búinn að vera í klúbbnum í 50 ár hefur greitt um 5 milljónir í ásrgjöld að meðaltali. (m.v. núgildi) Einnig mætti reyna að finna ein hverja leið í skráningum klúbbsins fyrir eldra fólkið til að komast á völlinn eftir hádegið án þess að þurfa hugsa fyrir því fjórum dögum áður, það er nefni lega alveg á mörkunum að maður muni eftir því að skrá sig með svona löngum fyrirvara. HBK Á 17. teig á Opna GR/Klaki mótinu nú í sumar.F.v.: Guðm. S. Jr. Guðmundsson, Guðmundur S., Jón Þór Grímsson og Guðjón Valgeir Ragnarsson. Á Spáni haustið 2020. Glaðbeittir félagar að loknum 18 holum. F.v.: Pétur Már Jónsson, Kristinn Guðjónsson, Guðmundur S. og Kristján Kristjánsson. Spilaðir voru 9 hringir á 11 dögum. Völlurinn í baksýn heitir Calanova sem er uppi í hæðunum á milli Fuengirola og Marabella á Costa Del Sol.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==