Kylfingur 2020

I KYLFINGUR I 35 kynna sér „Book of Icelanders“ og halda fyrirlestur um gagnagrunninn í klúbbnum. Á þessum tíma var ég einn af 15 starfsmönnum Íslendingabókar og sagði honum það. Hann trúði mér ekki en ég gat sannfært hann og við ákváðum að ég spilaði áfram og talaði um Íslendingabók og hann hætti að spila og skrifaði niður hjá sér allt sem ég segði og hann teldi að gæti gagnast sér í fyrirlestrinum. Ég byrjaði að þylja allt um upphafið, tilganginn og heimildirnar sem eru grunnurinn byggir á og viðtökurnar þegar Íslendingabók var opnuð almenningi. Hann spurði og ég svaraði því sem ég gat. Mað­ urinn var mjög þakklátur fyrir upplýsingarnar og mér fannst þetta ótrúlega skemmtileg tilviljun að við skildum rekast saman þarna. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Ég hef aldrei spilað með neinum kylfingi sem telst frægur en ég spila stundum með syni mínum Geir Sigurði sem er mjög góður og svo er ég í kvennahópi sem kallar sig Stellurnar og við spilum saman einu sinni í viku yfir sumarið og í þeim hópi er nokkrar sem eru mjög góðar. Hver er besti eða skemmtilegasti golfvöllur sem þú hefur spilað? Ég get ekki dæmt um hvaða völlur er bestur en ég veit hvaða vellir mér þykja einstaklega skemmtilegir og nefni þá Monte Castillo í Andalusiu, Golf Las Americas á Tenerife og ævin­ týralandið Hvaleyrarvöll. Eitthvað að lokum? Að lokum vil ég bara segja að það eru forréttindi að hafa aðgang að einstökum golfvöllum innan borgarmarkanna, völlum þar sem alltaf er tekið vel á móti manni. Eins og alls staðar er sumt sem mætti betur fara en hluti af því sem má laga er í höndum félagsmanna að gera eins og að hafa ruslapoka í golfpokunum sínum og taka allt rusl með sér og henda því í flokkunartunnur heim við skálana. 70 holur að baki. Geri aðrir betur. Til hamingju! „Korpan er eins og hleðslustöð, mér finnst ég alltaf fara af vellinum hressari og jákvæðari en þegar ég kem þangað. “ Ljósmyndir: Geir Sigurður Jónsson.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==