Kylfingur 2020

36 I KYLFINGUR I Ungir GR-ingar lönduðu þremur Íslandsmeistaratitlum á Íslandsmóti í holukeppni unglinga sem leikið var hjá Golfklúbbi Suðurnesja dagana 19.– 21. júní. Perla Sól Sigur­ brandsdóttir sigraði í flokki 14 ára og yngri stúlkna, Bjarni Þór Lúðvíksson í flokki 15–16 ára drengja og Dagbjartur Sigur­ brandsson í flokki 17–18 ára pilta. Árangur GR-inga var heilt yfir virkilega góður í mótinu og komust alls 28 kylfingar af 34 úr GR í 16 manna úrslit eftir höggleik, 18 í 8 manna úrslit, 11 í leiki um verðlaunasæti (5 í úrslit). Systkinin Dagbjartur Sigurbrandsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir fögnuðu sigri í sínum aldursflokkum í Íslands­ mótinu í holukeppni, Dagbjartur í piltaflokki 17–18 ára og Perla Sól í stelpnaflokki 14 ára og yngri. Bjarni Þór Lúðvíksson tryggði sér Íslandsmeistara­ titilinn í flokki 15–16 ára drengja. 3 Helstu úrslit GRinga í Íslandsmóti unglinga í holukeppni: 14 ára og yngri stúlkur 1. Perla Sól Sigurbrandsdóttir 3. Pamela Ósk Hjaltadóttir 14 ára og yngri strákar 4. Hjalti Kristján Hjaltason 15–16 ára stúlkur 3. Nína Margrét Valtýsdóttir 15–16 ára strákar 1. Bjarni Þór Lúðvíksson 4. Jóhann Frank Halldórsson 17–18 ára stúlkur 2. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir 4. Ásdís Valtýsdóttir 17–18 ára piltar 1. Dagbjartur Sigurbrandsson 2. Böðvar Bragi Pálsson 3. Tómas Eiríksson Hjaltested Íslandsmeistaratitlar

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==