Kylfingur 2020

I KYLFINGUR I 37 Íslandsmót unglinga í höggleik var leikið á Hvaleyrarvelli dagana 6.–9. ágúst. GRingar stóðu sig með prýði og tryggðu þær Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir sér Íslandsmeistaratitla í sínum aldursflokkum. Stigameistarar unglinga­ mótaraðar GSÍ voru svo krýndir í lok móts þar sem Perla Sól og Tómas Eiríksson Hjaltested tóku við stiga­ meistaratitlum í flokki 14 ára og yngri stelpna og 17–18 ára pilta. Perla Sól og Jóhanna Lea Íslandsmeistarar unglinga í höggleik. Perla Sól og Tómas stigameistarar Perla Sól Sigurbrands­ dóttir tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í höggleik og gulltryggði um leið stigameistarartitilinn í flokki 14 ára og yngri stelpna. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í flokki 17–18 ára stúlkna. Tómas Eiríksson Hjaltested tryggði sér stigameistarartitilinn í flokki 17–18 ára pilta með jafnri og góðri spilamennsku á tímabilinu.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==