Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 41 Silfursveit GR-kvenna fv.: Auður Elísabet Jóhannsdóttir, Signý Marta Böðvarsdóttir, Ásta Óskarsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Margrét Geirsdóttir liðsstjóri, Ásgerður Sverrisdóttir, Oddný Sigsteinsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir og Líney Rut Halldórsdóttir. GR konur hlutu silfrið Íslandsmót golfklúbba í flokki 50+ fór fram víða um land. Fyrsta deild kvenna lék í Vestmannaeyjum og leikar fóru þannig að GR konur urðu að lúta í lægra haldi, fyrir sterku liði Keilis. Karlarnir léku á Akureyri og urðu að sætta sig við 3. sætið að þessu sinni. Sveitina skipuðu þeir Guðmundur Arason, Jón Karlsson, Jón Kristbjörn Jónsson, Frans Páll Sigurðsson, Hannes Eyvindsson, Hörður Sigurðsson, Sigurður H. Hafsteinsson og Sigurður Pétursson, sem var spilandi liðsstjóri. BOLTAFÖR Á FLÖTUM Boltaför hafa verið áberandi á flötum félagsins í sumar og viljum við ítreka það við félagsmenn og kylfinga sem leika á völlum félagsins að lagfæra eftir sig boltaför sem myndast á flötum. Það er aldrei of oft minnst á það að ganga vel um vellina okkar og að við vinnum saman að því að gera góða velli enn betri.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==