Kylfingur 2020
42 I KYLFINGUR I Fimmta árið í röð var liðakeppni GR leikin. Nú var kominn nýr styrktaraðili að keppninni sem hét núna J. Lindeberg bikarinn. Vinsældir þessarar keppni hefur aukist jafnt og þétt eftir því sem fleiri kynnast henni. Þeir sem hafa keppt fyrir golfklúbba þekkja hve gaman er að leika í sveitakeppni og þetta er tækifæri til þess að taka þátt í afbrigði af slíkri keppni. Í ár voru keppnisliðin 24 og hafa aldrei verið fleiri. Leikið er í 6 riðlum með fjórum liðum í hverjum riðli. Riðlakeppnin var leikin fram að verslunarmannahelgi, en að lokinni riðla keppni hófst útsláttarkeppni. Sigurlið hvers riðils komst áfram úr riðlunum, auk tveggja liða í öðru sæti riðlanna. Hver viðureign í riðlakeppninni samanstóð að þremur leikjum, tveir tvímenningsleikir og ein fjórleikur. Lið fengu eitt stig fyrir sigur í hverri viðureign og hálft stig ef leikar enduðu jafnir. Haldið var utan um stöðu leikja, því ef lið voru jöfn að vinningum réði það röð liða hvernig leikirnir fóru. Ef það dugði ekki til var leikinn bráðabani. Í bráðabana léku tveir leikmenn fyrir sitt lið eina holu í senn þar til úrslit fengust. Í bráðabana gilti samanlagt skor liðsmanna og leikið er með forgjöf. Liðin léku innbyrðis við hvert annað og að lokinni keppni þurfti að leika bráðabana til þess að fá úrslit í einum riðlinum og eins milli liða í öðru sæti riðla til þess að skera úr um sæti. Lokastaðan úr riðlakeppninni, sjá töflu. Sigurlið riðlanna tryggðu sér sæti í 8 liða úrslitum. Það eru Ásar, FORE B, nalúK, Naloh, og Forynjur sem sigruðu sína riðla og Duftið var með flest stig í öðru sæti riðils. Team Lady vann sjötta riðil í bráðabana og Væringjar komust líka í úrsláttarkeppnina eftir bráðabana, fyrst þar sem þeir tryggðu sér annað sætið í riðlinum og síðan í öðrum þriggja liða bráðabana um eitt laust sæti í 8 liða úrslitum gegn liðum úr öðrum riðlum sem voru í sömu stöðu. Í 8 liða úrslitum komust Væringjar áfram eftir enn einn bráðabanann og nú gegn liði Ása. Liðið nalúK sigraði Team Lady og Forynjur sigruðu Naloh. Þá unnu FORE B leik sinn gegn Duftinu. Í undanúrslitum voru það lið Væringja og FORE B sem duttu út þar sem nalúK og Forynjur unnu örugga sigra. Það var nalúK sem hafði svo betur í úrslitaleik keppninnar. Unnu góðan sigur í flottum úrslitaleik, þar sem gott golf var leikið. Margir keppenda voru að leika sitt besta golf. Þetta er sjötti leikur liðanna í mótinu en hvorugt liðið hafði tapað leik í mótinu fyrir úrslitaleikinn. Þetta er fimmta árið í röð sem þessi liðakeppni fer fram og var ánægjulegt hve mörg kvennalið tóku þátt í keppninni í ár og að tvö þeirra léku svo til úrslita. Fyrsta árið var ekkert kvennalið sem skráði sig til leiks en sumarið 2017 mættu tvö til leiks, Kötlur og Hola í höggi. Bæði liðin hafa verið með síðan. Í ár voru 5 kvennalið og eitt blandað karla- og kvenna lið. Liðum hefur fjölgað frá ári til árs enda um mjög skemmti lega keppni að ræða, með sveitakeppnisstemmingu þar sem kylfingar fá tækifæri til að taka þátt í golfkeppni sem lið. Að loknum úrslitaleiknum fór fram lokahóf þar sem bæði lið fengu gjafabréf fyrir golffatnaði frá J. Lindeberg og nalúK voru krýndar sem liðameistarar GR 2020. Riðill 1 Li Ás Vi Br Stig Sæti Riðill 4 Ar Du FO Na Stig Sæti Lið nr 1 0 0,5 1 1,5 2 Artois 0 1 0 1,0 3 Ásar 1 1 0,5 2,5 1 Duftið 1 1 0,5 2,5 2 Vinir vors golf 0,5 0 0 0,5 4 FORE A 0 0 0 0,0 4 Brassar 0 0,5 1 1,5 3 Naloh 1 0,5 1 2,5 1 Riðill 2 Fa FO Mi Na Stig Sæti Riðill 5 El Fo Mö Go Stig Sæti Faxar 0 1 1 2,0 2 Elítan 0,5 1 0 1,5 3 FORE B 1 1 0,5 2,5 1 Forynjur 0,5 1 1 2,5 1 Minkurinn 0 0 0 0,0 4 Möskvi 0 0 0 0,0 4 Nafnlausu 0 0,5 1 1,5 3 GoldBond 1 0 1 2,0 2 Riðill 3 na Bo Ho Kö Stig Sæti Riðill 6 Te TO Tí Væ Stig Sæti nalúK 1 1 1 3,0 1 Team Lady 1 1 0 2,0 1 Bomburnar 0 1 1 2,0 2 TORFAN 0 0 0 0,0 4 Hola í Höggi 0 0 0,5 0,5 4 Tíhreyfingin 0 1 1 2,0 3 Kötlur 0 0 0,5 0,5 3 Væringjar 1 1 0 2,0 2 J. Lindeberg bikarinn – liðakeppni GR
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==