Kylfingur 2020

HÁKON ÖRN OG GUÐRÚN BRÁ SIGURVEGARAR Í HVALEYRARBIKARNUM Þetta er í fyrsta sinn sem Hákon Örn sigrar í Hvaleyrarbikarnum en Guðrún Brá vann síðast árið 2018. Guðrún Brá vann með sannfærandi hætti og lauk leik á samtals -3, í öðru sæti var Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG en hún var 5 höggum á eftir Guðrúnu á +2. Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR var þriðja og lauk leik á +4. Hákon Örn sigraði eftir nokkrar sviptingar og lauk leik á -4. Í öðru sæti var Guðmundur Rúnar Hallgrímsson úr GS sem lauk leik á -3. Í þriðja sæti voru jafnir Andri Már Óskarsson úr GOS og Axel Bóasson úr GK en þeir voru á samtals -2.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==