Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 45 Skemmtilegri og spennandi pútt mótaröð lauk eftir 7 skipti í endur bættri inniæfingaaðstöðu okkar á Korpúlfsstöðum. Mótaröðin hófst 28. janúar og lauk 10. mars 2020, fyrr en áætlað var, vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Líkt og undanfarin ár var frábær þátttaka en heildarfjöldi sem skráði sig til mótsins í vetur taldi 227 konur, mjög vel gert! Tveir hringir voru spilaðir hvert þriðju dagskvöld þar sem betri hringurinn taldi og til púttmeistara töldu 4 bestu hringirnir. Púttmeistari GR-kvenna árið 2020 var Ásta Óskarsdóttir og hlaut hún í verðlaun gjafakort í Golfskálanum að upphæð kr. 50.000. Ásta fór 4 bestu hringina sína á samtals 115 höggum sem er frábær frammi staða. Í 2. sæti var Lára Eymunds dóttir á samtals 116 höggum, hún hlaut í verðlaun gjafakort í Golf skálanum að upphæð kr. 30.000. Í 3. sæti var svo Linda Bergsveinsdóttir á samtals 116 höggum, hún hlaut í verðlaun gjafakort í Golfskálanum að upphæð kr. 20.000. Það var mjög mjótt á munum um 2–5. sætið og heildarskorið hnífjafnt, fara þurfti krókaleiðir í seinni 9 holur í síðasta spilaða hring sem taldi inn í mótið fyrir viðkomandi til að finna úrslitin. Þær Signý Marta Böðvarsdóttir og Sólveig Pétursdóttir tóku 4. og 5. sætið og svo koll af kolli. Við óskum Ástu Óskarsdóttur innilega til hamingju með árangurinn og titilinn og okkur öllum hinum fyrir góða þátt töku. Púttmótaröðin er meira en heildarskor, við veitum einnig verðlaun fyrir besta skor á hverju púttmótskvöldi. Í verðlaun er gjafakort í Golfskálanum að upphæð kr. 5.000 og hljóta eftirfarandi GR-konur slík verðlaun: Besta skor 28. janúar: Helga Ívarsdóttir 26 högg Besta skor 4. febrúar: Ragnheiður Víkingsdóttir 27 högg Besta skor 11. febrúar: Magdalena M. Kjartansd. 27 högg Besta skor 18. febrúar: Sólveig Pétursdóttir 26 högg Besta skor 25. febrúar: Margrét Karlsdóttir 28 högg Besta skor 3. mars: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir 27 högg Besta skor 10. mars: Helga Tryggvadóttir 26 högg Nú er vorið framundan og við hlökkum mikið til að starfa með ykkur áfram í vor og sumar. Við erum þessa dagana að skipuleggja sumarstarfið og munum kynna dagskrána nánar þegar nær dregur. Sumarstarfið verður bæði með hefð bundnu sniði og einnig munu nýjungar líta dagsins ljós. Við tökum tillit til þeirra aðstæðna sem ríkja hverju sinni og virðum reglur um samkomubann, snertifleti og 2ja metra fjarlægðarbil. Áætlað er að hefja leikinn með 9 holu opnunarmóti GR- kvenna þegar vellirnir hafa opnað, nánari útfærsla verður kynnt síðar en mótið fer fram á heimavelli. Sumarmótaröðin byrjar miðvikudaginn 20. maí og spilað verður annan hvern miðvikudag fram í lok júlí, alls sex skipti. Undantekning er að leikið verður 24. júní í stað 17. júní. Meistaramótið er svo á sínum stað í júlí og haustmót GR kvenna í september. Við í kvennanefndinni hlökkum mikið til að starfa með ykkur áfram í vor og sumar, allar ábendingar um starfið eru vel þegnar sem og ef þið hafið möguleika á að aðstoða með vinninga fyrir komandi mót. Með sumarkveðju frá Kvennanefnd GR 2020: Guðrún Óskarsdóttir Inga Nína Matthíasdóttir Kristín Nielsen Ljósbrá Baldursdóttir Sigríður Oddný Marinósdóttir Þórey Jónsdóttir. Púttmótaröð GR-kvenna 2020 Ásta Óskarsdóttir púttmeistari Ásta Óskarssdóttir lét sér ekki nægja að sigra á púttmótaröðinni heldur gerði sér lítið fyrir og sigraði 1. flokk kvenna á meistaramóti GR 2020. Á myndinnu kemur hún glaðbeitt í hús eftir lokahringinn á meistaramótinu sem hún spilaði frábærlega og tryggði sér öruggan sigur.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==