Kylfingur 2020

46 I KYLFINGUR I Hjóna- og parakeppni Golfklúbbs Reykjavíkur fór fram að venju 17.júní. Mikil þátttaka var í mótinu og nánast slegist um plássin. Alls mættu 62 hjón eða pör til leiks eða 124 manns. Veðrið lék við keppendur í Grafarholtinu. Eftir spilið var tekið á móti kepp­ endum með þriggja rétta máltíð hjá Holtinu klúbbhúsi. Spilað var Greensome og veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Einnig voru veitt nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins. Úrslitin voru eftirfarandi: 1. Hörður Sigurðsson og Laufey Valgerður Oddsdóttir 63 nettó 2. Jón Þór Gunnarsson og Birgitta Guðmunsdóttir 64 nettó 3. Guðmundur Hjaltason og Bogey Ragnh. Sigfúsdóttir 64 nettó Nándarverðlaun: 2.braut: Hörður Theodórsson 0,83 m 6.braut: Hrund Grétarsdóttir 3,11 m 11.braut: Laufey V. Oddsdóttir 1,95 m 17.braut: Helga Óskarsdóttir 1,48 m Golfklúbbur Reykjavíkur óskar verðlaunahöfum til hamingju með sinn árangur og þakkar öllum fyrir þátttökuna í dag. Hörður og Laufey sigurvegarar í Hjóna- og parakeppni GR Góðgerðarmótið Einvígið á Nesinu (Shoot out) var leikið á Nesvellinum á frídegi verslunarmanna við nokkuð breyttar aðstæður en oft áður þar sem engir áhorfendur voru leyfðir vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta var í 24. skiptið sem mótið var haldið og að venju voru tíu af bestu kylfingum landsins mættir til leiks. Haraldur Franklín Magnús stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa haft betur gegn Andra Þór Björnssyni á níundu og síðustu holunni. Það voru svo kylfingar úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem röðuðu sér á eftir þeim í þriðja og fjórða sætið, þau Hákon Örn Magnússon og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir. Allt fé sem safnaðist á mótinu rennur til kórónuveirudeildar Landspítalans. HARALDUR FRANKLÍN SIGRAÐI EINVÍGIÐ Á NESINU

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==