Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 51 Í slandsmótið í holukeppni fór fram á Akureyri eftir miðj an júní og var eftir því tekið hversu góðum árangri okk ar fólk náði á mótinu. Í kvennaflokki tryggði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sér Íslandsmeistaratitilinn eftir GR úrslitaleik og hörku viður eign við Evu Karen Björnsdóttir. Ragnhildur Kristinsdóttir tryggði sér svo þriðja sætið með sannfærandi sigri gegn Guðrúnu Brá úr GK. Þetta er í þriðja sinn sem Ólafía Þór unn sigrar á þessu móti. Í karlaflokki lék Hákon Örn Magnússon úr GR til úrslita gegn Axeli Bóassyni úr GK í spennandi leik þar sem þeir skiptust á að leiða allt til enda þar sem Axel hafði betur. Axel hefur einu sinni áður sigrað á Íslandsmótinu í holu keppni og það var á Jaðarsvelli árið 2015. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR tryggði sér svo þriðja sætið með öruggum sigri gegn Ólafi Birni Loftssyni úr GKG. Þess má til gamans geta að þegar komið var í 8 manna úrslit í karla og kvennaflokki voru 9 af 16 kylfingum sem fóru upp úr riðlunum úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Við óskum okkar fólki til hamingju með sigurinn og frá bæran árangur um helgina. Ólafía Þórunn í viðtali við Golf á Íslandi að loknum sigri: „ Mér fannst þetta mjög gott mót og holukeppnin er alltaf skemmtileg. Það er eitthvað við staðinn, Akureyri og Jaðarsvöll, sem heillar mig. Ég veit ekki hvað það er en ég elska að spila hérna. Ég spilaði heilt yfir mjög vel í þessu móti en í úrslitaleiknum fann ég að ég hefði getað gert aðeins betur. Við höfum öll gott af því að keppa við þessar aðstæður sem eru í heiminum í dag. Íslandsmót eru alltaf stór og það var meira undir í þessu móti en í venjulegu stigamóti. Ég veit að ég mun ekki keppa á mörgum mótum á Íslandi á næstunni og það var gaman að fá þetta tækifæri og landa Íslandsmeistaratitli, “ sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eftir sigurinn. Frá vinstri: Eva Karen, Ólafía Þórunn og Ragnhildur, allar í GR. Frá vinstri: Hákon, Axel og Guðmundur Ágúst. Mynd /seth@golf.is Mynd /seth@golf.is Aðalfundur SÍGÍ var haldinn þann 28. febrúar síðastliðinn og var Darren Farley, vallarstjóri Grafarholts, valinn golfvallarstjóri ársins 2019. Vallar stjórar ársins eru kosnir af félögum SÍGÍ og var Sigmundur Pétur Ástþórs son hjá FH var valinn knattspyrnu vallarstjóri ársins. SÍGÍ eru samtök íþrótta- og golf vallastarfsmanna á Íslandi sem stuðla að fagmennsku hjá félagsmönnum sínum og sér þeim fyrir sem bestum upplýsingum til að auðvelda þeim starf sitt á golf- og íþróttavöllum á Íslandi. Markmið SÍGÍ eru að viðhalda og bæta gæði golf- og íþróttavalla hérlendis. Framkvæmdarstjóri, stjórn og starfs fólk klúbbsins óskar okkar manni, Darr en Farley, kærlega til hamingju með útnefninguna. DARREN FARLEY VALINN VALLARSTJÓRI ÁRSINS Darren Farley, vallarstjóri Grafarholts og Sigmundur Pétur Ástþórsson frá FH.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==