Kylfingur 2020
52 I KYLFINGUR I Sigursveit GR. F.v.: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Nína Margrét Valtýsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Ásdís Valtýsdóttir, Saga Traustadóttir, Eva Karen Björnsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir og liðsstjórinn Derrick Moore. Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði í 1. deild kvenna. Keppt var á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Þetta var 21. Íslandsmeistaratitill GR frá því að fyrst var keppt árið 1982 í kvennaflokki. GKG varði titilinn frá því í fyrra en þetta var sjöundi sigur GKG í þessari keppni frá árinu 2004. Í 1. deild karla varð Golfklúbbur Reykjavíkur í þriðja sæti en þeir sigruðu GM í leiknum um þriðja sætið. Við erum gríðarlega stolt af okkar fólki og óskum þeim innilega til hamingju með sigurinn! Íslandsmót Golfklúbba GR ÍSLANDSMEISTARI KVENNA
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==