Kylfingur 2020

I KYLFINGUR I 55 Lokadagur Open de Portugal mótsins fór fram20. september sl. Guðmundur Ágúst Kristjánsson var á meðal keppenda og endaði hann mótið jafn í 18. sæti. Mótið var hluti af Evrópu­ mótaröð karla og Áskorendamótaröðinni og er þetta besti árangur hans á Evrópumótaröðinni. Guðmundur hafði lokið við sex holur á þriðja hring þegar allir voru kallaðir inn vegna veðurs. Þá var hann á tveimur höggum undir pari. Hann lék því 30 holur lokadaginn og lék fínt golf, náði sér í 11 fugla á þessum tæplega tveimur hringjum en fékk fjóra skolla og lék því holurnar lokadaginn á sjö höggum undir pari. Guðmundur endaði því mótið á samtals níu höggum undir pari og endaði mótið eins og áður sagði jafn í 18. sæti. Besti árangur hans fyrir þetta mót á Evrópumótaröðinni kom í Austurríki fyrr í sumar þegar að hann endaði jafn í 57. sæti. Þess má til gamans geta að Guðmundur er nú kominn með 15 stig á stigalista Evrópumótaraðarinnar, Race to Dubai stigalistanum, og er hann í 274. sæti á listanum. Það var Suður-Afríkubúinn Garrick Higgo sem bar sigur úr býtum. Hann endaði mótið á samtals 19 höggum undir pari. Í 5. sæti á Áskorendamótaröðinni – Challenge Tour Guðmundur Ágúst varð í toppbaráttunni á Áskorendamóta­ röðinni – Challenge Tour sem leikin var í byrjun september og endaði hann í 5. sæti á samtals -9. Haraldur Franklín Magnús og Andri Þór Björnsson tóku einnig þátt á mótinu og komust báðir í gegnum niðurskurðinn. Haraldur endaði í 33. sæti á samtals -3 og Andri Þór lauk leik á +4 sem skilaði honum í 48. sæti. Keppni fór fram á Galgorm Spa & Golf Resort á Norður-Írlandi skammt frá höfuðborginni Belfast. Tyler Koivisto, frá Bandaríkjunum, sigraði mótið á samtals -13 samtals en þetta var fyrsti sigur Koivisto á Áskorenda­ mótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu. Besti árangur Guðmundar Ágústar á Evrópu­ mótaröðinni

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==