Kylfingur 2020
Íslandsmóti golfklúbba 15 ára og yngri og 18 ára yngri fór fram í júní en þar voru 7 sveitir frá GR í eldlínunni frá fimmtudegi til laugardags. Sveitir GR stóðu sig frábærlega og voru Golfklúbbi Reykjavíkur til mikils sóma innan vallar sem utan. Á Hellu sigruðu sveitir GR í úrslitum Íslandsmeistaratitla í bæði stúlkna og piltaflokki 18 ára og yngri. Stúlkurnar unnu sannfærandi sigur í 4 liða riðli og piltarnir lögðu sveit GKG af velli í spennandi úrslitaleik. Sveit Grafarholts í piltaflokki stóð sig einnig frábærlega, tapaði einungis einum leik í allri keppninni en innbyrðis sigrar stóðu í vegi fyrir leik um verð launasæti en piltarnir unnu sannfær andi sigur í leik gegn GOS um 5. sæti. Í keppni 15 ára og yngri Akranesi tóku fjórar ungar sveitir þátt fyrir hönd GR og stóðu sig frábærlega. Stelpurnar í sveit Korpu tryggðu sér Íslands meistaratitilinn með sannfærandi sigri í úrslitaleik gegn GM. Drengjasveit Korpu tryggði sér þriðja sætið á ævin týranlegan hátt í bráðabana í fjór menningsleiknum. Sveitir Grafarholts stóðu sig einnig gríðarlega vel og voru allir liðsmenn sveitanna að sækja mikla og góða reynslu fyrir framtíðina með frábærri frammistöðu og eldskírn í þessu stóra verkefni. Stelpusveit Grafarholts end aði í 9. sæti og drengjasveit Grafarholts í 11. sæti. Þetta verkefni er stórt og krefst öflugrar samvinnu liðsmanna, liðs stjóra, þjálfara og síðast en ekki síst foreldranna sem fylgja sveitunum eftir og létta undir störfum þjálfaranna með því að ganga í hin ýmsu verk sem fylgja mótinu og spila stórt hlutverk í því að allt saman gangi sem best fyrir sig og að upplifun barnanna verði sem best. Við þökkum þeim öllum fyrir sitt fram lag. Við óskum sveitum GR og öllum GR- ingum til hamingju með árangurinn. Áfram GR! 56 I KYLFINGUR I SVEITIR GR STÓÐU SIG FRÁBÆRLEGA Á ÍSLANDSMÓTI GOLFKLÚBBA Íslandsmeistarar Golfklúbba 18 ára og yngri pilta. F.v. Böðvar Bragi Pálsson, Arnór Tjörvi Þórsson, Finnur Gauti Vilhelmsson, Dagbjartur Sigurbrandsson. Tómas Eiríksson Hjaltested og David George Barnwell liðsstjóri.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==