Kylfingur 2020
Hvers vegna nýtt forgjafarkerfi? Var ekki gamla kerfið ágætt og þurfti eitthvað að breyta því? Sjálfsagt eru margar skoðanir á því. En málið er að ekki gilti sama kerfið alls staðar í heiminum. Nýja forgjafarkerfið er samræmt og hægt að nota á öllum golfvöllum sem eru viðurkenndir af viðeigandi golfsambandi. Leikið hefur verið eftir einum golfreglum alls staðar og nú þótti tími til kominn að golf með forgjöf skyldi leikið með sömu reglum alls staðar. Fyrir voru 6 mismunandi kerfi. Flestar þjóðir í Evrópu notuðu sama kerfi og við Íslendingar, frá Evrópska golf sambandinu (EGA). Bretar notuðu annað kerfi (Congu), þar sem menn léku með sömu leikforgjöf á öllum völlum og öllum teigum, svo eitt afgerandi atriði sé nefnt. Bretar eru nýbúnir að innleiða þetta kerfi og það er nú komið á alls staðar. Það á því að vera hægt að leika golf alls staðar og nota forgjöfina frá okkar heimaklúbbi og það er eina for gjöfin sem á að vera í notkun hjá hverjum kylfingi. Hann á ekki að vera með aðra forgjöf í Bretlandi, Bandaríkjunum, Belgíu eða Brasilíu, svo dæmi séu tekin. Vallarforgjöf er óbreytt Grunnforgjöfin er áfram tala með einum aukastaf. Vallar forgjöf er veitt með sama hætti og áður. Forgjafartöflurnir á hverjum velli voru því óbreyttar. Nema ef vellirnir hefðu fengið nýtt vallarmat. Forgjafarútreikningur breyttist Í gamla kerfinu lækkaði forgjöfin ef kylfingur fékk fleiri en 36 punkta. Svokallað grátt svæði í punktafjölda þýddi óbreytta forgjöf og ef kylfingur náði ekki inn á gráa svæðið í punkta fjölda þá hækkaði forgjöfin um 0,1. Þetta er öllu óljósara með nýja kerfið. Forgjöfin byggir á 8 bestu af síðustu 20 hringjum. Ef nýjasti hringurinn er ekki meðal 8 bestu af síðustu 20 hringjum þá breytist forgjöfin ekki. Þegar búið er að skila hring inn og staðfesta af ritara þá uppfærist nýja forgjöfin ekki fyrr en daginn eftir. Það er vegna þess að svokallaður PCC-stuðull reiknast ekki fyrr en á miðnætti en sá stuðull getur leiðrétt skor dagins um -1 til +3. Hvað er þetta PCC? PCC stendur fyrir Playing Conditions Calculation og kallast útreikningur leikaðstæðna á íslensku. Eins og nafnið gefur til kynna er um útreikning að ræða, en forgjafarkerfið reiknar út öll skor dagsins á hverjum velli fyrir sig. Venjulega er PCC stuðullinn 0. Hins vegar ef skor eru óvenjugóð eða óvenju slæm þá dregur kerfið frá eða bætir við skorið. Þeir sem smíðuðu þetta kerfi meta það sem svo að ef þeir kylfingar sem leika til forgjafar á einhverjum velli leiki að meðaltali einn daginn betur en búast má við þá sé dreginn punktur af skori dagsins. Það er algjörlega óháð veðri eða öðru, kerfið reiknar þetta út frá meðalskori á viðkomandi velli. Sama á við ef skorin eru verri en við má búast þá getum við fengið auka punkta. Hvað er ekki notað lengur? Ekki eru lengur neinir forgjafaflokkar. Ekki neitt grátt svæði heldur. Forgjöfin er meðaltal af 8 bestu af síðustu 20 hringj um. Í gamlakerfinumáttukylfingarmeðmeistaraflokksforgjöf ekki leika æfingahringi til forgjafar. Nú geta allir leikið til for gjafar í hvert sinn sem leikið er. Hvað er átt við með 8 bestu hringjum? Fólk sér forgjafaryfirlitið og áttar sig á því að 8 bestu hring irnir eru ekki endilega 8 punktahæstu eða 8 lægstu högg leikshringirnir. Það þarf að vera hægt að bera saman skor sama af hvaða teigum leikið er og á hvaða velli sem er. Þess vegna er reiknaður út skormismunur eftir hvern hring og skormismunurinn segir til um á hvaða forgjöf kylfingur raunverulega lék. Dæmi um skormismun Kona með 10,3 í forgjöf leikur Korpúlfsstaðavöll Landið/Áin og hún leikur af rauðum teigum. Hún fær 10 í leikforgjöf. Með henni í holli er karl með 15,5 í forgjöf. Hann leikur af gulum teigum og fær 15 í leikforgjöf. Í forgjafarkerfinu er gert ráð fyrir að kylfingur fái 2 punkta fyrir holu ef holan er leikin á pari þegar búið er að draga forgjafarhögg frá. Ef kylf ingur leikur á sinni forgjöf fær hann 36 punkta. Segjum svo að konan leiki hringinn á 35 punktum og karlinn á 39 punktum. Hvaða skormismun fá þau eftir hring inn? Konan fær 10 í leikforgjöf, en þeir sem eru með 10,2-11,0 fá 10 í leikforgjöf samkvæmt forgjafartöflu. Hana vantaði 1 punkt upp á 36 punkta þannig að hún lék í raun eins og hún væri með 11 í leikforgjöf. Samkvæmt forgjafartöflu gefur grunnforgjöf 11,1-11,9 leikforgjöfina 11. Hún fær því 11,5 í skormismun sem er mitt á milli 11,1 og 11,9. Karlinn getur nú eftir hringinn kíkt á forgjafartöfluna. Hann fékk 15 í leikforgjöf en af því að hann lék á 39 punktum Nýja forgjafarkerfið í golfi Fyrsta mars síðastliðinn tók gildi nýtt forgjafarkerfi á Íslandi. Margt er líkt með gamla kerfinu en einnig eru þættir sem eru allt öðruvísi. Nú hefur kerfið verið í notkun eitt tímabil á Íslandi. Hér verður fjallað um þetta nýja kerfi og samanburður gerður við gamla forgjafarkerfið. 60 I KYLFINGUR I
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==