Kylfingur 2020

I KYLFINGUR I 61 jafngilti það 12 í leikforgjöf (3 punktar umfram 36 punkta). Á forgjafartöflunni er hægt að sjá að grunnforgjöf 11,7-12,5 gefur 12 í leikforgjöf. Mitt á milli 11,7 og 12,5 er 12,1 og hringurinn gefur 12,1 í skormismun. Nema ef PCC er ekki 0. Ef PCC er -1 þarf að fara einni línu ofar í forgjafartöflunni en einni línu neðar ef um +1 er að ræða. PCC er hins vegar reiknað eftir miðnætti og það kem­ ur því ekki í ljós fyrr en daginn eftir. Hvers vegna lækkar forgjöfin ekki alltaf þegar leikinn er hringur yfir 36 punktum? Hringur sem fer yfir 36 punkta verður alltaf einn af 8 bestu hringjunum. Það er af því að hann gefur skormismun sem er lægri en meðaltalið af 8 bestu skormeðaltölum. Í dæminu hér fyrir ofan fær karlinn skormismun 12,1 en var með grunnforgjöf 15,5. Nýi hringurinn verður einn af 8 bestu. Það getur hins vegar gerst að ennþá betri hringur detti út. Elsti hringurinn af síðustu 20 dettur út úr yfirlitinu þegar nýr hringur kemur inn. Gamli hringurinn sem nú er orðinn númer 21 í aldursröð forgjafarhringja. Ef hann var með skor­ mismun t.d. 11,3 þá hækkar forgjöfin, því að þó að nýi hringurinn sé mjög góður þá var enn betri hringurinn að detta út úr yfirlitinu sem sýnir 20 síðustu hringi. Þak á hækkun forgjafar Forgjöfin hjá flestum kylfingum sveiflast meira í þessu kerfi en því gamla. Í forgjafarkerfið var því sett regla um hve mikið forgjöfin gæti hækkað. Reglan er þannig að kerfið finnur lægstu forgjöf síðustu 12 mánaða og kallast sú forgjöf lágforgjöf. Forgjöfin getur ekki orðið meira en 5 hærri en lágforgjöfin. Annar varnagli er í kerfinu, sem er þannig að þegar forgjöfin hefur hækkað um 3 heila yfir lágforgjöf, þá hækkar hún helmingi minna en hún hefði átt að gera að óbreyttu, þangað til forgjöfin er komin 5 heila yfir lágfor­ gjöfina. Auka lækkun á forgjöf Forgjöf getur líka lækkað hraðar ef það koma sérlega góðir hringir. Ef skormismunur hrings er meira en 7 lægri en grunnforgjöf þá verður hringurinn að sjálfsögðu einn af 8 bestu en lækkar forgjöfina að auki um 1 heilan. Ef skor­ mismunur hrings er síðan meira en 10 lægri en grunn­ forgjöfin þá kemur aukalækkun upp á 2 heila. Spilaðu oft til forgjafar Forgjafarkerfið virkar best og endurspeglar raunverulega getu kylfings ef leikið er reglulega til forgjafar. Sumir fara sjaldan í mót og kylfingar leika golf mis oft. En mælst er til þess að kylfingar leiki sem oftast til forgjafar. Þegar þið leikið venjulegan hring, þó hann sé ekki í móti, skilið hringnum inn til forgjafar. Púttið út, takið víti á réttum stað og leikið til forgjafar. Það er leiðin til þess að vera með rétta forgjöf. Og þá er hægt að keppa við golffélagana á jafningjagrundvelli. Atli Þór Þorvaldsson

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==