Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 7 Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur fór fram við heldur óhefðbundnar aðstæður 7. desember sl. en vegna sam komutakmarkanna var fundurinn haldinn rafrænt. Félags menn þurftu að skrá sig til fundar fyrirfram og bárust félaginu um 400 skráningar fyrir kl. 18:00 á fundardegi. Aldrei áður hafa jafn margir félagar setið aðalfund. Formaður félagsins fór yfir skýrslu stjórnar og kynnti áherslur ársins 2021. Harpa Ægisdóttir fjármálastjóri kynnti ársreikning félagsins og þá fór Ómar Örn Friðriksson, framkvæmdarstjóri yfir fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Fundarstjóri var Ólafur Arinbjörn Sigurðsson. Björn Víglundsson gaf áfram kost á sér sem formaður félagsins og hefur nú sitt sjöunda starfsár sem formaður. Alls gáfu sex aðilar kost á sér til kjörs í aðalstjórn og koma tveir nýir aðilar í stjórn félagsins til næstu tveggja ára. Ólafur W. Hand hlaut endurkjör og koma þau Kristín Eysteinsdóttir og Brynjar Jóhannesson ný inn. Í varastjórn kemur Guðmundur Arason nýr inn og áfram sitja Stefán Már Stefánsson og Þórey Jónsdóttir. Við þökkum þeim Jóni B. Stefánssyni og Önnu Björk Birgisdóttir fráfarandi stjórnarmönnum kærlega fyrir vel unnin störf fyrir félagið á liðnum árum. Guðný H. Guðmundsdóttir, fyrrverandi gjaldkeri, lést á árinu og vottar stjórn GR fjölskyldu hennar og aðstandendum samúð um leið og við þökkum fyrir öll hennar óeigingjörnu störf fyrir félagið. Guðmundur Björnsson lét af störfum sem formaður kjör nefndar og kemur Sigurjón Árni Ólafsson nýr inn í kjörnefnd á komandi starfsári. Golfklúbbur Reykjavíkur vill þakka Guðmundi fyrir vel unnin störf í gegnum árin. Hagnaður á starfsárinu var 102,5 milljónir króna til saman burðar við 104 milljónir árið á undan. Tekjur námu alls 544 milljónum samanborið við 512 milljónir á árinu 2019. Golfklúbbur Reykjavíkur annaðist rekstur tveggja golfvalla á árinu ásamt rekstri Bása. Eins og kynnt hefur verið á miðlum félgsins eru stórfram kvæmdir fyrirhugaðar á vormánuðum. Framkvæmdasjóður klúbbsins stendur vel og eru spennandi tímar framundan þar semmikil uppbyggingmun eiga sér stað. Aðstaða félagsmanna til golfiðkunar allt árið um kring verður bætt til muna. Fjárhagsáætlun GR 2021 var samþykkt á aðalfundi og verða félagsgjöld hækkuð hóflega á milli ára eða um 2% og horfir stjórn til samfélagslegrar ábyrgðar í þeim efnum. Gjaldskrá fyrir komandi tímabil verður eftirfarandi: Félagsmenn 19-26 ára, kr. 57.100 Félagsmenn 27-70 ára, kr. 114.100 Félagsmenn 71-74 ára, kr. 85.400 Félagsmenn 75 ára og eldri, kr. 85.400 Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 57.100 *enda verið félagi í GR í a.m.k. 10 ár Golfklúbbur Reykjavíkur notast áfram við Nóra félagakerfi við skráningu og innheimtu félagsgjalda. Skráning greiðslu fyrirkomulags fer fram í gegnum félagavef https://grgolf. felog.is/ og þurfa félagsmenn að skrá sig inn til að ráðstafa greiðslutilhögun. Áfram er boðið upp á það greiðslu fyrirkomulag sem hefur verið undanfarin ár – allt að 5 skipti með kröfum í banka eða allt að 10 skipti með dreifingu á greiðslukort. Áfram verður hægt að nýta frístundastyrk sveitarfélaga við greiðslu 6-18 ára á komandi ári og verður gjaldskrá þess aldurshóps fyrir árið 2020 þessi: Heilsársæfingar, kr. 48.800 Hálfsársæfingar, kr. 28.250 Sumaræfingar, kr. 17.950 Á árinu varð 34% aukning í leiknum hringjum á völlum GR frá fyrra ári, framboð rástíma jókst um 17% með tilfærslu bókana úr 10 mínútum í 9 mínútur. Þessa miklu aukningu má einnig tengja við faraldurinn sem gerði það að verkum að félagsmenn voru minna en oft áður á faraldsfæti erlendis. Mikil aukning var í fjölda leikinna hringja á vinavöllum félagsins en ætla má að faraldurinn hafi einnig spilað þar stóran þátt. Landsmenn ferðuðust innanlands sem aldrei fyrr og nýttu félagsmenn sér eldri og nýja vinavelli félagsins um land allt. Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar Ólafi Arinbirni fundarstjóra fyrir faglega og góða fundarstjórn og félagsmönnum fyrir sína þátttöku. Stjórn, framkvæmdarstjóri og starfsfólk klúbbsins þakkar félagsmönnum fyrir óvenjulegt en gott starfsár. Metþátttaka á aðalfundi Golfklúbbs Reykjavíkur 2020 Um 400 félagsmenn „mættu“ á aðalfund GR, þeas. sátu heima í stofu en tóku fullan þátt engu að síður. Tæknin lætur ekki að sér hæða þó hún hafi strítt félagsmönnum af og til.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==