Kylfingur 2020

8 I KYLFINGUR I Íslenska golftímabilið var ekki formlega hafið þegar fyrsta kórónuveirusmitið greindist hér á landi þann 28. febrúar. Púttmótaraðir karla og kvenna voru þó í fullum gangi á þessum tíma og kom tilkynning þann 10. mars að íþróttastarf mætti halda áfram. Í ljósi aðstæðna var ákveðið að lengja opnunartíma fyrir púttmótaraðirnar og takmarka fjölda í húsinu hverju sinni. Fljótlega fór smitum í samfélaginu að fjölga og samkomubann sett á og fór svo að púttmótaröðum var aflýst þann 16. mars og því aðeins 8 umferðir af 10 leiknar í karlapúttinu en 7 af 9 hjá kon­ unum. Eins og oft er á vorin þá var fólk orðið óþreyjufullt að komast í golf, ferðir erlendis voru takmarkaðar og því fjöldi íslenskra kylfinga hér á landi sem annars hefðu verið í vorferðum sínum, að hita upp fyrir komandi tíma­ bil. Litli völlurinn á Korpu, Thorsvöllur, sem er vinsæll á þessum tíma þegar ekki er búið að opna stóru vellina, var opinn með hertum reglum þar sem tímabundnar reglur voru settar um rástíma á 15 mínútna fresti og tveir máttu vera saman í holli ásamt fleiri ströngum skilyrðum. Þetta fordæmalausa ár Við höfum heyrt talað um þetta fordæmalausa ár, allt árið, enda hefur 2020 ekki verið neinu öðru líkt og á það jafnt við um golfið sem og annað mannlíf. Fyrirfram var vitað að íslenskir kylfingar þyrftu að mæta nýjum áskorunum með tilkomu nýs forgjafakerfis auk þess sem Golfbox yrði tekið í notkun í stað gamla golf.is . Það sem ekki var fyrirfram vitað var að kórónuveiran (Covid-19) mundi mæta og setja sitt mark á allt samfélagið. Í meðfylgjandi grein ætlum við að fara yfir það hvaða áhrif kórónuveiran ein og sér hafði á golftímabilið hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Bætt lega í glompu, færa um lengd kylfugrips (Covid-19 frávik). Þar sem hrífur hafa verið fjarlægðar úr glompu og ástand hennar er mjög ójafnt þá má leikmaður taka vítalausa lausn einu sinni áður en höggið er slegið, með því að leggja upphaflega boltann innan lausnarsvæðis og leika honum þaðan.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==