Kylfingur 2020
Nýjar Covid-19 reglur (hér til hliðar) voru svo settar sem tóku gildi þann 4. maí þegar búið var að slípa hlutina betur til og aðlaga eins og hægt var eftir aðstæðum. Reglur voru hertar og slakað á öðru hvoru eftir því hvernig bylgjur kórónu veirunnar gengu yfir. Kylfingar sem léku á völlum GR máttu sætta sig við það í allt sumar að ekki mátti taka stöngina úr á flötum og hrífur voru ekki í glompum. Hreinsistandar fyrir bolta voru heldur ekkert hafðir í notk un. Margir golfvellir slökuðu á þessum kvöðum í takt við tilslakanir sótt varnaryfirvalda og leyfðu í raun meira en sóttvarnarreglur sögðu til um. Í allt sumar voru þær reglur í gildi að sótt hreinsivökvi og klútar til að sótthreinsa hefðu þurft að vera við alla sameigin lega snertifleti, þar með talið flagg stangir og hrífur. Við töldum þá aðgerð vera illframkvæmanlega svo að Golf klúbbur Reykjavíkur hélt sig við Covid- 19 reglurnar sem settar voru þann 4. maí út allt golftímabilið. Kórónuveiran hefur haft gífurleg áhrif á samfélagið allt, margir misstu vinnuna á meðan aðrir unnu heiman frá sér og höfðu í kjölfarið meiri sveigj anleika með vinnutíma. Enn aðrir fóru tímabundið í hlutastörf og allt hafði þetta í för með sér að margir höfðu meiri tíma fyrir golfiðkun og áhugi kviknaði hjá enn öðrum semmögulega höfðu ekki spilað golf áður. Ofan á þetta bættist það við að landsmenn fóru lítið sem ekkert í ferðalög erlendis, hvorki í golfferðir né sumarfrí með fjölskyldunni. Aðsókn á vellina varð í kjölfarið meiri og átti það ekki eingöngu við um velli GR heldur varð það raunin hjá flest öllum klúbbum landsins. Leiddi þetta til þess að eftirspurn eftir rástímum varð mjög mikil. Það sem Covid-19 reglurnar höfðu í för með sér að kylfingar urðu fljótari að spila golf hringinn, það að ekki mátti taka stöng ina úr og hrífulausar glompur bættu greinilega leikhraða. Tímamælingar í golfmótum sýndu fram á þetta og urðu bæði eftirlitsmenn og almennir kylf ingar varir við þetta. Til þess að svara aukinni eftirspurn eftir rástímum var því ákveðið að gera tilraun til þess að bóka rástíma á 9 mínútna fresti í stað 10 mínútna áður. Leiðbeiningar fyrir golfklúbba vegna Covid-19 Gildir frá 4. maí 2020 Gefnar voru út leiðbeiningar fyrir golfklúbba til að uppfylla auglýsingu um samkomubann sem gilda mun frá og með 4. maí. Vinna þessi var unnin af viðbragðshóp GSÍ vegna Covid-19. Voru félagsmenn hvattir til að kynna sér þessar leiðbeiningar vel en þær má finna hér fyrir neðan. Almennt golf: Golf uppfyllir nánast öll þau skilyrði samkomubanns sem gildir frá 4. maí 2020 og því einungis nauðsyn að árétta örfáa hluti sem gætu orsakað smithættu. Þrátt fyrir þessa upptalningu þá gilda að sjálfsögðu öll tilmæli sóttvarnalæknis, svo sem reglan um 2 metra á milli kylfinga og ráð leggingar um þrif og sótthreinsun. Við leik er bannað að taka/snerta stöngina. Útbúa skal svamphólk utan um stöngina svo að boltinn fari ekki nema að hluta til ofan í holuna. Efnið heitir píparaeinangrun og fæst bæði í BYKO og Húsasmiðjunni. Metrinn kostar 263 kr. en 6-6.5 cm fara í hverja holu (sjá mynd). Þeir klúbbar sem þess óska geta fengið hólkana tilsniðna og tilbúna til notkunar hjá GSÍ, sér að kostnaðarlausu. Hrífur skal fjarlæga úr glompum. Leyfa má hreyfingar á bolta í glompum (sjá staðarreglur). Óheimilt er að slétta svæðið áður en bolti er hreyfður. Golfklúbbum er einnig heimilt að merkja glompur sem grund í aðgerð. Mælst er til þess að boltahreinsivélar séu fjarlægðar af golfvellinum. Sambýlisfólk má vera saman í golfbíl. Aðrir verða að vera einir í golfbíl. Golfklúbbar hvetja kylfinga til að skrá skor með rafrænum hætti. Ef skorkort er notað eiga kylfingar ekki að skiptast á þeim. Undantekningar frá golfreglunum sem taldar eru hér upp að ofan í lið 1 og 2 hafa ekki áhrif á forgjafarútreikning og mun gilda í mótum samkvæmt úrskurði R&A, enda setja golfklúbbar tímabundnar staðarreglur þar að lútandi. Golfskálar: Golfklúbbar hafi flestir veitingaleyfi og heyra því undir viðkomandi heilbrigðisyfirvöld til að viðhalda leyfum sínum. Það er því í höndum golf klúbbanna sjálfra að útfæra það samkomubann sem gildir hverju sinni um starfsemi þeirra í golfskálunum. Þó er mælst til þess að sturtuaðstaða og búningsherbergi verði lokuð. Æfingasvæði: Það er álit hópsins að klúbbar þurfi að vanda sig til að koma í veg fyrir smithættu á æfingasvæðum. Sameiginlega snertifleti skal sótthreinsa eins og best er kostur. Nauðsynlegt er að sótthreinsa golfbolta eftir hverja notkun. Við mælumst til þess að boltar séu settir í sótthreinsilög. (https://kemi.is/verslun/ landbunadur/sotthreinsiefni-landbunadur/virkon-s-sotthreinsiefni/) Einnig er nauðsynlegt að hafa við höndina sótthreinslög til að hreinsa körfur og sameiginlega snertihnappa á boltavélum. (https://kemi.is/verslun/ landbunadur/sotthreinsiefni-landbunadur/bactan-4-sotthreinsiefni/) Tveir metrar skulu vera á milli æfingamotta. Mikilvægt er að virða tilmæli sóttvarnalæknis og landlæknis meðan samkomubannið varir! I KYLFINGUR I 9
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==