Kylfingur 2020

I KYLFINGUR I 79 púttmótaröð karla 2020 Ecco-púttmótaröðin hófst á Korpúlfs­ stöðum 23. janúar 2020, eins og undan­ farin ár voru 10 umferðir áætlaðar, en enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér og það sannaðist heldur betur þar semmótaröðinni var sjálfhætt eftir átta umferðir. Að tveimur umferðum loknum var farið að tala um að veira, sem fékk nafnið Covid19 og átti upptök sín í Kína, væri farin að breiðast um alla heims­ byggðina og leggja fólk að velli í stórum stíl. Hérlendis var þetta tekið mjög alvarlega og voru landsmenn hvattir til að þvo sér um hendur með sérstökum hætti og spritta hendur oft á dag til að sporna við smiti. Þetta hafði þau áhrif að sprittbrúsum var komið upp víð í klúbbhúsinu. Sóttvarnalæknir setti svo reglu um fjöldatakmarkanir svo að púttmótaröðin var í uppnámi og sumir þátttakendur hættir að mæta vegna hugsanlegrar smithættu. Brugðið var á það ráð að hefja leik kl. 14 í stað 16 til að dreifa mannskapnum sem mest enda fjöldatakmarkanir komnar niður í 50 manns á sama stað. Að loknum átta umferðum var undirritaður alvarlega farinn að hugsa um að setja upp rástíma fyrir hvert lið en það kom aldrei til þess þar sem sóttvarnalæknir setti á „tveggja metra regluna“ og þá var ekki lengur neinum vörnum viðkomið og pútt­ mótaröðinni sjálfhætt eins og áður sagði. Ekki var um annað að ræða en láta stöðuna eftir átta umferðirnar verða

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==