Kylfingur 2020

lokaniðurstöðuna í þessu fordæmalausa ástandi. Efstir og jafnir í einstaklingskeppninni urðu þeir Jón Karlsson og Jóhann Hall­ dór Sveinsson, þriðji var Jónas Gunnars­ son. Lið nr. 1, skipað þeim Jóni Karlssyni, Jónasi Kristjánssyni, Hjalta Pálmasyni, Páli Birki Reynissyni og Jóni Þór Ólafs­ syni, stóðu undir nafni og sigruðu í liða­ keppninni. Verðlaunasöfnun var rétt að hefjast þegar þessu öllu lauk en hún gekk eftir atvikum vel og fengu rúmlega 30 til 40 þátttakendur einhvern glaðning eins og áður. Verðlaunaafhendingin varð hins vegar snúin og fór það svo að henni var skipt í tvo hluta, fyrir páska og svo síðar. Fyrir páska fengu efstu sætin sín verð­ laun og þeir sem fengu til að mynda páskaegg í úrdrættinum urðu að sækja sín verðlaun heim til undirritaðs. Seinni hluti verðlaunaafhendingarinnar stóð hins vegar langt fram á sumar en allir fengu sín verðlaun að lokum. Bestu þakkir til Ecco sem er styrktar­ aðili mótaraðarinnar og ekki síður þakkir til þeirra félaga sem eru með á mótaröðinni og komu færandi hendi með verðlaun þetta árið. Ómar Örn framkvæmdastjóri GR fær einnig bestu þakkir fyrir samstarfið. Einnig ber að þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem finnst sjálfsagt að styrkja púttmótaröðina hjá GR. Má þar nefna Herrafataverslunina Karlmenn, Myndform, Martex, veitinga­ staðina Restó og Hereford, Laugar Spa, Rolf Johansen, Landsbankinn, Kólus, Nóa/Síríus og mörg önnur. Golfklúbb­ urinn í Holtagörðum veitti verðlaun fyrir besta skor hverrar viku allar um­ ferðirnar. Takk kærlega fyrir. Ég vil sérstaklega þakka Atla Þór Þor­ valdssyni sem sér um að öll skor fari á réttan stað. Án hans yrði þetta allt tölu­ vert erfiðara. Að lokum óska ég sigurvegurum til hamingju með árangurinn . Svo að endingu þakka ég öllum fyrir þátttökuna í vetur og vonandi hafa allir haft gagn og gaman af. Stefnt er að hafa púttmótaröðina á sínum stað í vetur, 2021, en eins og staðan er þegar þetta er skrifað veit enginn hvað verður. Vonum það besta. Annars bara kátur. HBK

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==