Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 91 Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur var haldinn 5. desember og fór fundurinn fram á Korpúlfsstöðum. Fundarstörf voru með hefðbundnum hætti, for maður klúbbsins fór yfir skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2020 og gjaldkeri kynnti ársreikning og fjárhagsáætlun félagsins. Björn Víglundsson situr áfram sem formaður klúbbsins og hefur nú sitt sjötta starfsár sem sitjandi formaður. Tveir nýir fulltrúar voru kosnir í vara stjórn félagsins fyrir árið 2020, þau Gísli Guðni Hall og Þórey Jónsdóttir og bjóð um við þau velkomin til starfa fyrir félagið. Við þökkum þeim Atla Þór Þor valdssyni og Sigurði H. Hafsteinssyni, fráfarandi fulltrúum úr varastjórn, fyrir vel unnin störf. Hagnaður á starfsárinu var 104 millj. kr. en til samanburðar varð hagnaður árið á undan 78 millj. kr. Tekjur námu alls 512 millj. kr. samanborið við 458 millj. kr. á árinu 2018. Golfklúbburinn annaðist rekstur tveggja golfvalla á árinu ásamt því að sjá um rekstur Bása. Stór verkefni bíða Golfklúbbs Reykja víkur á næstu árum og stendur fram kvæmdasjóður klúbbsins vel og verður tilbúinn í þau verkefni þegar þar að kemur. Stefnt er að því að þau verkefni verði framkvæmd með framlagi Reykja víkurborgar og eigin fé klúbbsins. For maður tilkynnti á aðalfundi að boðað yrði til sérstaks félagsfundar þar sem umræða um framtíðaruppbyggingu Golfklúbbs Reykjavíkur verði kynnt félagsmönnum. Fjárhagsáætlun GR 2020 var sam þykkt á aðalfundi og verða félagsgjöld hækkuð um 3,5% og er gjaldskrá kom andi árs eftirfarandi: Félagsmenn 19-26 ára, kr. 56.000 Félagsmenn 27-70 ára, kr. 111.900 Félagsmenn 71-74 ára, kr. 83.700 Félagsmenn 75 ára og eldri, kr. 83.700 Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 56.000 *enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur 2019: Stór verkefni framundan Björn Víglundsson flytur skýrslu stjórnar. Hann er að hefja sitt sjötta starfsár sem formaður GR.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==