Kylfingur 2020

92 I KYLFINGUR I Golfklúbbur Reykjavíkur notast áfram við Nóra félagakerfi við skráningu og innheimtu félagsgjalda. Skráning greiðslufyrirkomulags fer fram í gegn­ um félagavef https://grgolf.felog.is/ og hvetjum við félagsmenn til fara yfir greiðsluupplýsingar sínar og uppfæra ef á að gera breytingar. Áfram er boðið upp á það greiðslufyrirkomulag sem hefur verið undanfarin ár – allt að 5 skipti með kröfum í banka eða allt að 10 skipti með dreifingu á greiðslukort. Áfram verður hægt að nýta frístunda­ styrk sveitarfélaga við greiðslu 6-18 ára á komandi ári og verður gjaldskrá þess aldurshóps fyrir árið 2020 þessi: Heilsársæfingar, kr. 47.850 Hálfsársæfingar, kr. 27.700 Sumaræfingar, kr. 17.600 Á árinu varð 24% aukning í leiknum hringjum á völlum GR frá fyrra ári og má þessa miklu aukningu tengja við hið góða veðurfar sem við fengum að njóta. Korpa 9 holur – 39.121 hringir sam­ anborið við 33.938 á árinu 2018 Korpa 18 holur – 37.529 hringir sam­ anborið við 31.044 á árinu 2018 Grafarholt – 39.006 hringir saman­ borið við 28.280 á árinu 2018 Mikil aukning var í fjölda leikinna hringja á vinavöllum félagsins en ætla má að veðurfar hafi spilað einngi spilað þar stóran þátt. Brynjar Jóhannesson tók til máls og talaði fyrir hönd golfhópsins Elítunnar um það hvað félagsmenn gætu gert fyrir klúbbinn. Í framhaldi lagði hann það til að hópar tækju að sér að fóstra brautir valla GR í samvinnu við vallar­ starfsmenn. Þessi tillaga hlaut góðar undirtektir og munu starfsmenn fél­ agsins vinna nánar að henni og kynna félagsmönnum. Formaður fór yfir fyrirhugaðar fram­ kvæmdir á komandi rekstrarári og má þar helst nefna endurbætur á golf­ skálanum í Grafarholti og inniæfinga­ aðstöðu á 2. hæð Korpu, þar er fyrir­ hugað að endurnýja gólfefni og bæta lýsingu í sal. Rúsínan í pylsuendanum á komandi ári eru golfhermar sem vænt­ anlegir eru í TrackMan Range í Básum en þar verður hægt að leika alla velli Golfklúbbs Reykjavíkur sem og aðra heimsfræga golfvelli. Reikna má með að hermarnir verði settir upp á vor­ mánuðum. Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar Ólafi Arinbirni fundarstjóra fyrir faglega og góða fundarstjórn og félagsmönnum fyrir sína þátttöku. Smári Ríkharðsson í ræðustól. Harpa og Dóra höfðu í nógu að snúast.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==