KYLFINGUR 2021
16 I KYLFINGUR I É g var svo heppin að foreldrar mínir Dóra Bergþórsdóttir og Sverrir Erlendsson gerðust með limir í Golfklúbb Ness árið 1966 en það var móðurbróðir minn Kristinn Berg þórsson (Bói) sem kynnti þau fyrir sportinu. Á þessum árum voru fáir í golfi og almennt álitið að golf væri bara fyrir vel efnaða eldri karla. Það var í raun fráleitt að faðir minn sem var togaraskipstjóri og að meðaltali 2 daga í mánuði í landi, skyldi láta sér detta þetta í hug. Ég var of ung til að vera skilin eftir ein heima og þurfti því að hafa mig með út á völl. Mér þótti það hrikalega leiðinlegt þangað til að ég fékk kylfu í hendurnar og dinglaðist með hana. Ég fékk fljótlega mikinn áhuga á að bæta mig og taka þátt í mótum þótt kunnáttan væri ekki upp á marga fiska. Ég nauðaði í foreldrummínum að fá að taka þátt í fyrsta meistaramóti klúbbs ins, tólf ára gömul. Það var ekki gert ráð fyrir stelpu í mótinu og ég var því sett í unglingaflokk það árið, með þremur strákum sem voru þar að auki bræður. Það sáust sjaldan stelpur á golfvellinum á þessum árum sem þýddi að ég spilaði annað hvort við miklu eldri konur eða stráka á mínu reki. Þetta var svipað í hinum klúbbunum en í GR voru þær Jóhanna Ingólfsdóttir og Ágústa Dúa Jónsdóttir bestar en Kristín Þorvaldsdóttir í Keili kom stundum á Nesið með pabba sínum Þorvaldi Ásgeirssyni, eina atvinnugolf kennaranum á þeim tíma á Íslandi. Lærði mest af mömmu Ég fór í nokkra tíma hjá Þorvaldi en annars lærði ég mest af mömmu sem hafði áskotnast eins konar golfbiblía með kennsluköflum og sögum af helstu golfkempum fyrri tíma. Þessi bók var lesin í tætlur. Ég lærði líka ýmislegt af því að vera kylfusveinn fyrir frændur mína Bóa og Guðmund Ófeigsson. Guðmundur passaði sérstaklega uppá að ég lærði siðareglurnar vel og væri ekkert að masa að óþörfu. Ég bjó í austurhluta borgarinnar og þurfti því að hafa töluvert fyrir því að komast út á völl. Þurfti að taka strætó út á Nes og ganga síðan spölinn eftir tanganum út á völl. Barna- og unglingastarf var skammt á veg komið svo ekki sé talað um afreksstarf. Það þóttu því stór tíðindi þegar Loftur Ólafsson varð Íslands meistari 1972. Hann varð fyrirmynd okkar yngri og gerði þátttöku í Íslands móti spennandi markmið. Fleiri flottir strákar bættust við í klúbbinn eins og Gunnlaugur Jóhannsson (Gulli málari), Magnús Stefánsson og Ásgeir Þórð arson en það sárvantaði áfram stelpur. Kjartan L. Pálsson var vallarstjóri og allt í öllu í Nesklúbbnum og hvatti okkur til dáða á meðan við vorum bara til trafala í augum annarra. Hann var eins og allir vita sem kynntust honum, einn af þessum stóru karakterum í golfinu hér heima. Unglingamót í Belgíu Á þessum árum voru haldin mjög skemmtileg alþjóðleg unglingamót í Belgíu, sem mér bauðst nokkrum sinn um að taka þátt í. Þessi unglingamót voru sérstök þar sem keppendur bjuggu hjá fjölskyldum á svæðinu. Ég kynntist þarna hinni gómsætu belgísku matargerð. Þetta var vel efnað fólk og bjó við munað sem maður hafði ekki kynnst fyrr. Maður áttaði sig þó fljót lega á hve við værum heppin á Íslandi að geta stundað golf án stöðu og fjárhags. Því miður er þetta enn við loðandi í mið-Evrópu sem skýrir að ein hverju leyti af hverju það eru ekki fleiri afburða atvinnumenn sem koma frá þessum risaþjóðum eins og Þýskalandi og Frakklandi. Í því samhengi er alveg stórmerkilegt að fylgjast með árangri íslenskra kylfinga í atvinnumennskunni í dag. Úr Nesklúbbnum í GR Þar sem ég eyddi flestum stundum á golfvellinum í frítímanum, eignaðist ég kærasta, Geir Svansson, sem var einn af bestu kylfingum Íslands. Í kjölfarið flutti ég mig yfir í Golfklúbb Reykjavíkur og hef verið meðlimur þar allar götur síðan. Á fyrstu árunum í GR kynnist ég bestu kylfingum landsins; Ragnari Ólafssyni, Sigurði Péturssyni, Hannesi Eyvindssyni, Sigurði Hafsteinssyni og Björgvini Þorsteinssyni sem var alla tíð viðloðandi GR þótt hann væri fyrst og Á heimsmeistaramóti áhugamanna í Genf 1982. Verðlaunahafar á Íslandmótinu 1983. F.v.: Gylfi Kristinsson, Ásgerður Sverrisdóttir, Úlfar Jónsson, Jóhanna Ingólfsdóttir og Björgvin Þorsteinsson.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==