KYLFINGUR 2021

20 I KYLFINGUR I verður að segjast að það er horft mest á golf og fótbolta á mínu heimili. Ég hef alltaf stundað einhverja lík­ amsrækt á veturna en fyrir nokkrum árum kynntist ég Kundalini-jóga sem ég heillaðist alveg af og stunda reglu­ lega. Jóga af einhverju tagi ætti að mínu mati að vera hluti af þjálfun alls afreksfólks. Ekki bara til að bæta liðleika heldur ekki síður til að bæta einbeitingu og hugarþjálfun sem er jú svo mikilvæg í golfinu. GR hefur breyst í áranna rás GR er allt annar klúbbur en þegar ég gerðist meðlimur fyrir margt löngu síðan. Frá því að allir þekktu alla og maður labbaði út á völl og spilaði án þess að þurfa að bóka rástíma þá er þetta eðlilega gjörbreytt stórfyrirtæki. Rástímakerfið er stóra vandamálið sem truflar alla. Fyrir fullborgandi meðlimi er það fullkomlega óásættan­ legt að allir rástímar séu farnir á innan við 10 sekúndum frá opnun. Það verður vonandi eitt af forgangsverk­ efnum nýrrar stjórnar að laga þetta. Innanhúss æfingaaðstaða annarra klúbba er víða orðin svakalega flott og öfundsverð miðað við GR. Það verður spennandi að sjá úrbætur á því sviði sem eru í bígerð. Ég óska þess líka að GR verði fyrir­ mynd að jöfnum hlut kynja og afreks­ kylfinga óháð aldri. Ég myndi að auki vilja sjá að GR yrði reyklaus klúbbur, bæði innandyra sem utan. Veitingasalan hefur verið sérstaklega góð undanfarin ár og ég er ánægð með opnun söluskálans á 10. teig í Grafar­ holti. Veitingarnar eru í hágæðaklassa og gaman að getað farið út að borða í golfskálanum hvort sem fólk er að spila golf eða ekki. Verslunin í Grafarholti er líka glæsileg eftir nýlegar breytingar. Korpúlfsstaðavellirnir eru frábær viðbót við Grafarholtið en duga ekki til. Reykjavíkurborg og aðliggjandi sveitar­ félög með golfklúbbunum, ættu að sjá heilsuhagkvæmnina í því að fjölga golf­ völlum á höfuðborgarsvæðinu í takt við þá sprengingu í fjölda iðkenda sem er í gangi. Fáar íþróttir eru jafn heilsu­ bætandi fyrir fólk á öllum aldri eins og golf, sem minnkar hættu á ofþyngd, sykursýki, hjartasjúkdómum, krabba­ meini og öðrum lífstílstengdum sjúk­ dómum. Framtíðin Þegar ég varð fimmtug, byrjaði nýr kafli í keppnisferlinum. Þá tóku við LEK mótin og landslið 50 ára og eldri sem hafa orðið nýr innblástur og skemmtun. Ég hef sett mér markmið að komast í Evrópumót landsliða 50+ sem hefur tekist síðasta áratuginn og stefni að því áfram svo lengi sem ég hef gaman að því og heilsu til að standa í þessu stússi. Á yngri árum gat ég verið tapsár og sóað tíma í neikvæðni á vellinum. Í dag einset ég mér að njóta hverrar stundar á golfvellinum og er óendanlega þakk­ lát fyrir að hafa kynnst íþróttinni á unga aldri, tækifærum til keppni er­ lendis og persónum sem ég hef kynnst órjúfanlegum vinaböndum. ■ Ásgerður Sverrisdóttir krabbameinslæknir, segir nauðsynlegt að koma á skipulagðri skimun fyrir ristilkrabbameini fyrir 50 ára og eldri. Undanfarin ár hefur Ásgerður verið klúbbmeistari GR í sínum flokki 50+.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==