KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 19 Steinn ólst upp í Árbænum samtímis Sigga Hafsteins og Sigga Pé og var einn af þeim sem laumaði sér yfir á 14. brautina í Grafarholtinu á sínum tíma. Hann átti síðan fótboltaferil í Fram en fann sig svo aftur í golfinu. Það er nú svo heppilegt að við höfum lengi verið með svipaða forgjöf og mikil keppni á milli okkar án þess að ég verði nokkuð fúl þegar hann vinnur. Á Stokkhólms­ árunum fæddust synir okkar Sverrir og Axel en eldri bróðir þeirra, Hákon Steinsson, er uppalinn á Íslandi. Þeir kunna allir að spila golf en hafa ekki hellt sér út í það á fullu ennþá. Hákon er lyfjafræðingur og framkvæmdastjóri Lyfjavers, Sverrir er stjórnmálafræð­ ingur í doktorsnámi í Washington DC og Axel líffræðingur og starfar á Keld­ um. Ég tók aldrei alveg frí frá golfinu þótt tíminn færi aðallega í barnauppeldi og vinnu. Sumarfríin á Íslandi voru þeim mun betur nýtt í golfið sem gerði að ég lærði að njóta þess á allt annan hátt en áður. Á meðan við bjuggum ytra, tók Siggi Pé PGA kennararéttindin sín í Svíþjóð. Því fylgdu nokkrir kúrsar í Stokkhólmi og bjó hann þá hjá okkur. Það var sönn ánægja að fá Sigga í heimsókn en hafði alveg sérstakt lag á því að lyfta til­ verunni upp í glens og grín. Við fluttum svo heim aftur 2004 og ég fór að vinna á krabbameinsdeildinni en Steinn á vökudeild LSH. Hola í höggi Ég hef tvisvar farið holu í höggi, í fyrra skiptið 1987 á 2. holunni í Grafarholti og seinna skiptið á 9. holunni á Korp­ unni 2008. Í bæði skiptin lék ég af bláum teig og notaði 6 járn. Sem betur fer voru bæði höggin góð og áttu alveg skilið að enda í holunni. Önnur áhugamál Ég hef gaman af öllum íþróttum og sem krakki, prófaði ég frjálsar íþróttir, æfði handbolta með Þrótti, fékk svo skíðabakteríuna í Kerlingafjöllum, æfði og keppti í skíðadeild Ármanns í nokkur ár. Ég er nýlega farin að skíða aftur sem er gríðarlega skemmtilegt. Þó að golfið hafi tekið yfir hefur mér alltaf þótt gaman að prófa aðrar íþróttir og ég get horft með mikilli innlifun á nánast hvaða sport sem er í sjónvarpi. Þó Íslandsmót 50 ára og eldri á Hellu. Með Erlu Adolfsdóttir og Maríu Guðnadóttur. Þrjár kynslóðir Íslandsmeistara. Ragnhildur Sigurðardóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ásgerður Sverrisdóttir.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==