KYLFINGUR 2021

18 I KYLFINGUR I síðar og spila með skólaliðinu. Það var lokkandi tilboð en mér þótti það of óöruggt og kostnaðarsamt og fór heim til að hefja nám við Læknadeild Há­ skóla Íslands. Kosturinn við að vera í San Jose fyrir utan endalaust gott veður, var ná­ lægðin við marga af bestu golfvöllum í heimi. Það var samt ekki sjálfgefið að komast á þá. Ég náði þó að spila á Cypress Point, Pebble Beach, Pasat­ iempo og The Olympic Club í San Fransisco. Cypress Point er lokaður völlur fyrir aðra en meðlimi og ómögulegt á spila þar nema í gegnum góð sambönd. Thomas Holton, banda­ ríkjamaður og góður kylfingur í Nes­ klúbbnum, hafði á uppvaxtarárum sínum verið kylfusveinn á þessum dásamlega stað. Með handskrifað bréf frá honum fékk ég að spila frítt á vellinum. Þurfti bara að borga kylfu­ sveininum, en sá bar tvo golfpoka á bakinu sem mér fannst stórmerkilegt. Cypress Point upplifunin var engu lík, það var eins og að vera í draumi í himnaríkis golfarans. Mér bauðst líka að spila frítt á Pebble Beach sama ár og US Open var spilað þar 1982 fyrir tilstilli íslensks þjóns, sem starfaði á The Lodge at Pebble Beach á þeim tíma. Það var líka alveg magnað en ég ég náði samt ekki að melta það almennilega fyrr en ég fór aftur þangað 30 árum síðar. Fyrir utan Skotland og Kaliforníu hafa ferðir okkar Steins til Hawai hafa líka verið alveg magnaðar. Litirnir eru svo tærir á Maui að það er eins og og að vera komin inn í glansmyndir úr Biblíu­ sögunum. Eftirminnilegir sigrar Á fyrstu árunum í Læknadeildinni, náði ég töluverðum framförum og varð Íslandsmeistari kvenna í golfi tvö ár í röð þ.e. 1983 og 1984 og þá líka klúbbmeistari GR. Bæði Íslandsmótin vann ég í Grafarholtinu sem er mér afar kært. Þá fannst mér Íslands­ meistaratitlarnir alveg sjálfsagðir og löngu tímabærir eins og á örugglega við um marga í þeim sporum. Í dag lítur maður til baka á þessa sigra með auðmýkt og þakklæti í huga. Ég spilaði árlega í kvennalandsliðum Íslands í um 10 ára skeið frá 1982 en afþakkaði landsliðssæti 1995 en þá var yngsti sonurinn bara 6 mánaða. Í minningunni voru Norðurlandamótin skemmtilegustu landsliðsverkefnin en þá spiluðu bestu karla- og kvennalið Norðurlandanna á sama velli. Í þeim hópi voru margar tilvonandi stjörnur og atvinnumenn frá Svíþjóð og Dan­ mörku. Heimsmeistaramót landsliða (Espirito Santo Trophy) í Genf 1982 og síðar í Stokkhólmi voru líka mikil upplifun. Fyrir utan Íslandsmeistaratitlana í meistaraflokki, þá þykir mjög vænt um Íslandsmeistaratitilinn í flokki 35 ára og eldri á Kiðjabergi 2008 en þá spilaði ég minn langbesta hring fram að þeim tíma, einn undir pari og setti vallarmet. Fjölskyldan Eftir að ég útskrifaðist úr lækna­ deildinni 1989, flutti ég með manni mínum, Steini Auðunni Jónssyni, til Stokkhólms til sérnáms í krabbameins­ lækningum og nýburalækningum. Við vorum þar við nám og störf í 16 ár. Landslið Íslands fékk bronsverðlaun á Evrópumóti (ESLGA) 50+ árið 2019. F.v.: Magdalena S. Þórisdóttir, Kristín Sigurbergsdóttir, Ásgerður Sverrisdóttir, Guðrún Garðars, María Guðnadóttir og Ragnheiður Sigurðardóttir. Á The Olymipic Club í San Fransisco.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==