KYLFINGUR 2021
40 I KYLFINGUR I búa nær vellinum og þurfa ekki að keyra í góðan hálftíma á hverjum degi til að mæta til leiks. Höggleikurinn – Ragnhildur Kristinsdóttir best allra Barassie völlurinn er mjög skemmti legur. Hann var langur og krefjandi í mótinu, ríflega 6000 metrar. Hann spil aðist þó styttri í vindinum fyrstu þrjá dagana en svo breyttist vindáttin. Völlurinn er vel þess virði að heim sækja, auk þess sem starfsfólkið var einstaklega viðkunnanlegt. Eftir æf ingahring mánudaginn 7. júní hófst mótið. Mér gekk afar illa til að byrja með á fyrsta hring og var komin fimm högg yfir par eftir aðeins fimm holur. Ég vildi helst fara heim á þeim tíma punkti og láta mig hverfa en náði þó að rífa mig aðeins í gang á seinni hlutanum og kom loks inn á 9 höggum yfir pari. Þrátt fyrir að hafa spilað afar illa og vera vel utan við niðurskurðarlínu eftir fyrsta dag mótsins var ég nokkuð viss um að allt gæti gerst seinni daginn, enda talsverður vindur og því var ekkert gefið varðandi gott skor kepp enda. Fyrir lá að 64 efstu keppendurnir kæmust áfram í aðalkeppnina, þ.e. holukeppnina. Eftir að hafa fengið þrjá fugla í röð á fyrri 9 holunum seinni daginn var orðið nokkuð ljóst að ég myndi ná niðurskurðinum þrátt fyrir einfaldan og tvöfaldan skolla rétt í lokin. Ég fylgdist reyndar ekki mikið með stöðunni meðan á hringnum stóð en ég sá að pabbi, sem var á pokanum, fylgdist vel með, sagði ekkert, en mér sýndist hann þó sallarólegur. Þá var ég það líka. Auk mín tóku Ragnhildur Kristins dóttir og Hulda Clara Gestsdóttir einnig þátt í mótinu. Ragga stóð sig alveg frábærlega og varð efst allra keppenda í höggleiknum. Holukeppnin – Dagur 1 Það sem gerðist eftir höggleikinn var eiginlega það sem við íslensku kepp endurnir vildum alls ekki að gerðist. Þegar raðað var upp í holukeppnina kom nefnilega í ljós að við Hulda lentum í því að þurfa að spila innbyrðis leik í 64 manna úrslitum. Eftir að hafa byrjað afar illa í þeim leik kom ég ágætlega til baka og vann loks leikinn 2/0 á 18. Holukeppnin – Dagur 2 Ég var talsvert rólegri eftir að vera komin í 32ja manna úrslit og fannst reyndar á þeim tímapunkti að allt umfram það að komast þangað væri vonum framar. Ég vildi líka bara njóta þess að vera enn inni í mótinu á þessum tímapunkti og fá að spila áfram. Fyrir lá að þann dag, þ.e. fimmtudaginn, yrðu spilaðar 36 holur sem var reyndar fjórði dagur mótsins að meðtöldum æfingahring. Líklega spilaði ég mitt besta golf í mótinu þennan dag. Í fyrri leiknum spilaði ég á móti Hazel McGarvie sem hefur meðal annars náð í 60. sæti á heimslista áhugamanna kvenna. Það var líka athyglisvert við þann leik að við höfð um spilað saman í holli í höggleiknum og því vissi ég vel hve öflug hún var og enn fremur að hún hefði fáa ef nokkra veikleika í sínum leik. Hazel var heima maður og ein af þeim sem talin var hvað sigurstranglegust fyrir mótið. Hún var líka í miklu uppáhaldi hjá heimamönnum og fjölmiðlum, enda Skoti. Ég fór því inn í þann leik algerlega pressulaus, að mér fannst, enda hafði ég allt að vinna. Það má segja að ég hafi byrjað þann leik með svipuðum hætti og leikinn á móti Huldu deginum áður, þar sem ég var komin tvær holur niður eftir fjórar. Það var reyndar alltaf eitthvað sem hræddi mig við fyrstu fjórar holur vallarins í mótinu. Eftir að hafa fengið tvo fugla í röð á 5. og 6. holu fannst mér eins og ég væri komin í gang. Hazel fékk reyndar líka fugl á 6., en eftir 9. holu var ég búin að jafna leikinn, enda var ég að slá mjög vel. Eftir tap á 11. holu vann ég þá 14. og enn var allt jafnt. Ég vann svo tvær af næstu þremur holum, auk þess sem þriðja holan féll, sem nægði til þess að vinna leikinn 2/1. Það kom mér dálítið á óvart hvað ég var róleg allan tímann en þarna var ég búin að taka út úr mótinu eina af þeim sigurstranglegri og því jókst sjálfstraustið talsvert. Það var stutt pása á milli leikja. Eftir hádegið var leikið í 16 manna úrslitum. Pabbi sagði mér að hlaupa inn og fá mér eitthvað að borða með hátt nær ingargildi. Það var líklega það besta sem ég gat gert. Þarna skipti næringin miklu meira máli en að reyna að laga eitthvað á æfingasvæðinu sem ég var óánægð með í fyrri leiknum. Það var stundum gott að hafa þann gamla á pokanum þó við værum ekki alltaf sammála um kylfuval. Þegar ég sá svo hverri ég átti að mæta í næstu umferð hugsaði ég með mér að þetta yrði þó alltaf góð reynsla. Andstæðingurinn Jóhanna hitar upp fyrir úrslitaleikinn.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==