KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 41 var nefnilega Emily Toy frá Englandi. Það var ekki aðeins að hún væri ofarlega á heimslista áhugamanna kvenna heldur var hún einnig sigur­ vegari mótsins frá 2019, auk þess að vera í áhugamannalandsliði Englands. Ég var því ekki með miklar væntingar fyrir leikinn. Ég lagði upp með það að spila mitt golf og halda mér rólegri hvað sem á gengi, enda hafði ég slegið flott golf um morguninn. Ég spilaði svo mjög vel. Komst snemma yfir með því að para allar holur. Var þrjár holur upp eftir 10. Emily fékk svo fugl á 11. Ég var svo aftur komin þrjár holur upp eftir sigur á 15. og aðeins þrjár holur eftir. Á 16., sem er par fimm hola, átti ég sig­ urinn í leiknum svo nokkurn vísan þar sem ég var 60 metra frá gríni og 90 metrar í holu eftir tvö högg, en holan var aftast á gríninu, á meðan Emily var í brautarbönker eftir tvö og gat aðeins slegið til hliðar og átti því ekki mögu­ leika á því að slá á grínið. Mér nægði því að hitta grínið af þessu stutta færi og tvípútta til að sigra leikinn. Það er þó ekkert gefið í golfinu. Það lærði ég þarna. Það var mikill mótvindur á þessari holu. Ég tók því ég 9 járn til að vera viss um að ná alla leið að holu þar sem vindurinn var svo gríðarlegur. En þá gerðist það sem ég hafði ekki upplifað fyrr. Líklega hefur adrenalínið tekið völdin í högginu en ég hitti boltann MJÖG vel, eiginlega var þetta hið fullkomna högg að mér fannst. Annað átti síðan eftir að koma í ljós. Í stað þess að lenda við holu flaug boltinn líklega 130 metra gegn vind­ inum, yfir grínið niður í djúpa laut tals­ vert aftan við það, utan brautar, þannig að ég fór úr því að eiga sigurinn vísan í leiknum í það að vera komin í algerlega vonlausa stöðu á holunni. Þrátt fyrir að ég bjargaði skolla þá gerði Emily vel og fékk par og vann þar með holuna. Pabbi sagði mér seinna að ég hefði ekkert vilja ræða neitt annað en hið „fullkomna högg“ á næstu holum og hvernig það hafði farið, sem sennilega eftir á að hyggja var alls ekki svo fullkomið! Þrátt fyrir þetta var ég sannfærð um að ég myndi hafa sigur í leiknum. Ég tapaði svo 17. holunni þar sem ég missti stutt pútt fyrir að fella holuna og þar með sigra leikinn. Var líklega enn að hugsa um hið „fullkomna högg.“ Við Emily vorum svo báðar í sama bönker við grínið í tveimur höggum á 18. Emily sló gott högg uppúr bönkernum en ég síðra. Ég átti því lengra pútt eftir. Ég rétt missti púttið þar sem boltinn hékk á brúninni. Emily fékk því tækifæri til að jafna leikinn með því a setja niður 2-3 metra pútt, sem hefði verið einstakt klúður af minni hálfu ef svo hefði farið, en það gekk sem betur fer ekki eftir og holan féll. Þar sem 18. holan féll lá fyrir að ég komst áfram með því að vinna leikinn 1/0 og var komin í 8 manna úrslit. Holukeppnin – Dagur 3 Um morguninn daginn eftir í 8 manna úrslitunum mætti ég Kate Lanigan frá Stund milli stríða. Úrslitaleikurinn hálfnaður. Jóhanna Lea ásamt Dagbjarti Sigurbrandssyni og pabba sínum, Lúðvíki Bergvinssyni, sem var kylfusveinn dótturinnar alla keppnina.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==