KYLFINGUR 2021
Írlandi. Mér leið afar vel eftir að hafa leikið mjög gott golf daginn áður. Var slök og eiginlega komin það langt í mótinu að mér fannst ég ekki getað tapað neinu úr þessu. Ég byrjaði betur en ég hafði áður gert, fékk fugl á annarri holu en hún vann holuna til baka á þriðju með fugli. Leikurinn var vel spilaður af báðum. Hann var jafn lengstum. Ég var eina holu niður eftir 10., en þá fékk ég tvo fugla í röð og komst eina upp. Kate fékk svo fugl á 13. og þá var allt orðið jafnt aftur. Næstu holur spilaði ég undir pari og vann leikinn svo á 17., 3/1. Þetta var stærsti sigur minn í holukeppninni á mótinu. Eftir hádegið var svo komið að undanúrslitum. Það var níundi hring urinn minn frá því ég kom til Skotlands. Andstæðingurinn var Shannon Stevie McWilliam frá Englandi. Hún hafði komist hæst í 54. sætið á heimslista áhugamanna. Það var alveg ljóst að allir þeir leikmenn sem voru eftir í mótinu voru orðnir mjög þreyttir þegar kom að þessum leik. Því skipti mestu máli að mér fannst að halda haus og halda áfram leik sama á hverju gengi. Það var líka gott að vera með einhvern sem ég treysti á pokanum við þessar aðstæður. Reyndar leið mér mjög vel í upphafi, en smám saman áttaði ég mig á því eftir því sem á hringinn leið hversu erfitt þetta í raun og veru var orðið, bæði líkamlega og andlega. Ég byrjaði vel og var eina upp eftir 4 holur. Eftir 9 holur vorum við jafnar. Eftir að hún fékk fugl á 10. fóru hlutirnir að breytast. Ég missti allan fókus á næstu holum og tapaði þremur í röð, þ.e. 10., 11. og 12. Ég lét mistök á 10. holu fara mjög í taugarnar á mér sem leiddi til þess að ég sló afar illa næstu holur. Þreytan hafði líka sitt að segja. Pabbi reyndi að segja mér að hafa gaman af þessu og njóta en ég var enn pirruð út í sjálfa mig fyrir mistökin og þá hann líka þar sem hann var þarna. Það er talsverður gangur frá 12. gríni vallarins yfir á 13. teig. Ég notaði þann tíma til að velta fyrir mér hvers vegna ég væri svona pirruð. Ég hafði enga ástæðu til þess að vera það. Á þeirri göngu ákvað ég að klára mótið á þann hátt að ég gæti verið stolt af sjálfri mér og geta sagt eftir á að ég hafi lagt mig alla fram. Spila mitt golf. Ég veit að það er dálítið skrýtið að segja það núna en eftir gönguna yfir á 13. teig, verandi þrjár holur niður og sex holur eftir, þar sem ég hafði farið í gegnum það með sjálfri mér hvernig ég hafði látið eitt slæmt högg slá mig útaf laginu, var ég eiginlega viss um að ég myndi vinna leikinn. Ég sagði pabba það. Ég þyrfti bara að fókusera og spila mitt golf. Ég veit ekki af hverju ég var viss um að vinna en ég bara var það. Ég spilaði 13. til 17. holu vel í vindinum og náði að jafna leikinn með því að sigra þrjár holur á þeim kafla. Við vorum því jafnar þegar kom á 18. teig. Við gerð um báðar talsverð mistök á þeirri holu enda mikið undir og líka mikið stress hjá báðum. Holan féll á tvöföldum skolla. Það þýddi bráðabana. Fyrsta holan í bráðabananum, sem er fyrsta holan á vellinum, er par fimm hola sem hægt er að ná inná í tveimur. Það skipti öllu að hitta braut og vera á réttum stað eftir upphafshöggið. Ég hitti braut en Shannon sló út í runna utan brautar. Boltinn hennar fannst. Ég hélt mig við mitt leikplan og setti mig í gott færi fyrir fugli. Shannon var á gríninu í fjórum. Ég rétt missti fuglinn eftir að hafa krækt holuna, meðan Shannon náði ekki setja niður fyrir pari þannig að ég var komin í úrslitaleikinn. Holukeppnin – Dagur 4 – Úrslit Daginn eftir var úrslitaleikurinn, 36 holur. Andstæðingurinn var Luise Duncan sem hefur verið á topp 25 á heimslista áhugamanna. Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu, þar sem nokkrir helstu „lýsendur“ Evrópsku mótaraðarinnar lýstu leiknum. Við pabbi komum snemma á völlinn. Þegar við mættum var búið að setja nöfn okkar Luise á stóra Neon-skortöflu upp við æfingagrínið. Þá hafði boltum verið raðað upp á listrænan hátt á æf ingasvæðinu, með nafnspjöldum þar sem okkur hafði verið úthlutað af mörkuðu plássi til æfinga, líkt og stjórstjörnur væru á ferð. Mér tókst að halda mér nokkuð rólegri við þessar aðstæður, en eftir á að hyggja kann að vera að ég hafi ekki alveg áttað mig á því hve langt ég var komin í þessu fræga móti. Það var líka skemmtilegt og uppbyggjandi hve starfsmenn vallarins og allir í kringum mótið tóku mér vel og þrátt fyrir að Luise væri skosk, héldu margir starfsmannanna með Íslendingnum og hvöttu hann til dáða. Alla vega tókst mér að halda mér í momentinu í undirbúningnum. Ég hit aði upp eins og ég gerði alla dagana nema þetta sinnið var ég ein á æfinga svæðinu, sem var nýtt. Luise kom seint og chippaði aðeins meðan ég sló. Þrátt fyrir að reglan væri sú í mótinu að engir áhorfendur mættu vera á vell inum meðan á leik stóð, utan starfs manna mótsins, þá gilti sú sérregla í úrslitaleiknum að hvor keppandi mátti bjóða 45 áhorfendum á völlinn. Luise náði örugglega að fylla sitt „slott“, en ég var aðeins með tvo. Það var því talsverður fjöldi sem fylgdi Luise og studdi hana í leiknum. Ég var óvenjulega róleg á fyrsta teig og fékk fugl á fyrstu holu. Luise jafnaði svo metin með því að vinna þá næstu. Þriðja holan féll þar sem ég bjargaði pari eftir að hafa komið mér í talsverð vandræði. Það var svo á 6. holu sem ég hefði átt að komast aftur eina upp, en þrípúttaði. Þrátt fyrir að komast eina upp eftir 7., þá tókst mér ekki að fylgja því eftir með því að vinna 8., sem ég hefði auðveldlega átt að gera, þar sem ég þrípúttaði aftur. Ég var því aðeins eina holu upp eftir 8 holur, en hefði auðveldlega átt að vera þrjár upp, þ.e. eftir að hafa þrípúttað bæði á 6. og 8. Þetta hafði neikvæð áhrif á mig meðan Luise fékk aukið sjálfstraust við það að vera aðeins eina holu niður eftir erfiðan kafla. Hún fékk svo fugl á 9. með því að setja niður gott pútt þannig að leikurinn var orðinn jafn. Luise bjargaði svo pari á 10. á glæsilegan hátt með því a setja niður langt pútt og tókst því að fella holuna, sem gaf henni mikið. Áfram allt jafnt. Á 11. fékk Luise örn sem varð til þess í fyrsta skipti í leiknum var ég eina holu niður. Á 12., par þrjú holu, vorum við báðar á gríni eftir upphafshöggin. Ég þrípúttaði og tapaði holunni. Ég þrípúttaði svo aftur á 13. Þannig að holan féll. Ég vann 14., þannig að Luise átti eina holu. Á 15. sló ég út í vítasvæðið og tapaði holunni þrátt fyrir að bjarga skolla og var því tvær niður. Þrípútt á 16. og 18., auk slæmrar frammistöðu á 17. tryggði svo að Luise var 5 holur upp eftir 18. Í hléinu milli hringja fékk ég mér að borða og fór svo að pútta á æfinga gríninu, enda höfðu púttin gengið mjög illa. Ég fékk Dagbjart (Sigur 42 I KYLFINGUR I
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==