KYLFINGUR 2021

52 I KYLFINGUR I ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Sveinbjörn Örn Arnarson: Af hverju varð golf fyrir valinu: Sonur minn greip golfbakt­ eríuna í Öndverðarnesi í gamla daga og einhvern­ veginn fylgdi ég bara með og sé ekki eftir því. Hver er forgjöfin í dag: Hún er 22.2 og hefur reynst mjög erfitt að fá hana neðar. Korpan eða Grafarholt? Korpan þykir mér heilt yfir skemmtilegri, ætli það sé ekki vegna þess að þar gengur mér oftast betur. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Eins og flestir á maður góða og slæma daga en heilt yfir hefur mér gengið ágætlega. Eftirminnilegustu sigrarnir eru vissulega sigrarnir í Meistaramóti GR í mínum flokki. Ásamt sigrunum tveimur í Golfmóti stuðningsmanna­ klúbbs Leeds á Íslandi. Hefurðu farið holu í höggi? Nei ekki enn, en hef nokkrum sinnum ógnað holunni í fyrsta höggi, hlýtur að koma fyrr en síðar. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Í meistaramótinu árið 2020 á fimmtu holu í Grafarholti gerðist það að ég sló teighöggið í stein fyrir framan teiginn og fór þaðan boltinn yfir á göngustíginn sem liggur uppá 9. teig. Sló þaðan yfir í glompu á 8. holu og endaði á að rétt bjarga mér frá tveggja stafa tölunni. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Rölti einu sinni Þórsvöllinn með Pétri Frey Pétursyni og þar lét hann golfið líta út fyrir að vera afskaplega auðvelda íþrótt. Annars er það Kjartan Örn sonur minn þegar hann hittir á góðan dag. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Það er Mystic Dunes í Flór­ ída og Las Colinas á Spáni, á erfitt með að gera upp á milli þeirra. Annars er fátt sem toppar Korpuna á góð­ um sumardegi. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Er virkilega ánægður hjá GR. En það væri þó afskap­ lega gott að hafa aðstöðu á til að geta slegið nokkur upphitunarhögg fyrir hring á Korpúlfs­ stöðum. Eitthvað að lokum? Takk fyrir frábært golfsumar og von­ andi verður það næsta enn betra. Einnig ber að hrósa púttmótaröðinni sem haldin er á veturna með von um að hún verði áfram um ókomin ár. Sigurður Jónsson f. 30.06.1946 – d. 27.03.2021 Sigurður Jónsson eða Siggi eins og við kölluðum hann lést á Krabbameinsdeild Landspítalans þann 27. mars síðastliðinn. Siggi hóf störf hjá Golfklúbbi Reykjavíkur í maí árið 2014 og vann með okkur fram á dánardag, hann sinnti starfi sem forstöðumaður Bása um tíma og sem eftirlitsmaður á völlunum síðustu árin. Siggi var einstakur samstarfsfélagi sem hafði gaman af lífinu, ávallt stutt í húmorinn og til þjónustu reiðubúinn þegar leitað var til hans, hver svo sem verkefnin voru. Við minnumst samstarfsfélaga okkar með bros á vör og þökkum fyrir að hafa haft hann í okkar hópi. Stjórn og starfsfólk Golfklúbbs Reykjavíkur

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==