KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 53 Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Andri Már Óskarsson frá Golfklúbbi Selfoss stóðu uppi sem sigurvegarar í Hvaleyrarbikarnum sem keppt var um hjá Golfklúbbnum Keili um miðjan júlí, mótið er hluti af stiga­ mótaröð GSÍ. Ragnhildur lék á samtals 218 högg­ um eða 5 höggum yfir pari (74-69-75) og sigraði með 9 högga mun. Berglind Björnsdóttir úr GR varð í öðru sæti á samtals 227 höggum en hún og Kristín Sól Guðmundsdóttir úr GM urðu jafnar í 2. til 3. sæti á +14. Í karlaflokki sigraði Andri Már Ósk­ arsson frá Golfklúbbi Selfoss, hann lék á samtals 207 höggum og sigraði á samtals -6. Jafnir í 2. til 3. sæti á sam­ tals 209 höggum urðu þeir Daníel Ísak Steinarsson og Axel Bóasson, báðir úr Golfklúbbnum Keili. Ragnhildur Kristinsdóttir og Andri Már Óskarsson sigruðu Hvaleyrarbikarinn GUÐRÚN GARÐARS Íslandsmeistari í flokki 65 ára og eldri Íslandsmót eldri kylfinga 2021 fór fram í Vestmannaeyjum dagana 15.- 17. júlí. Mikill áhugi var á mótinu og komust ekki allir að í mótinu sem sóttust eftir því. Guðrún Garðars úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði Íslandsmeistara­ titilinn í flokki 65 ára og eldri en hún lék á samtals 272 höggum. Í öðru sæti varð Ágústa Dúa Jónsdóttir úr NK á 286 höggum og Rakel Kristjáns­ dóttir úr GL varð þriðja á 296 högg­ um. Í karlaflokki sigraði Björgvin Þor­ steinsson frá Golfklúbbi Akureyrar á samtals 231 höggi. Sæmundur Páls­ son úr GR varð í öðru sæti á 238 höggum og Sigurður Aðalsteinsson úr GÖ varð þriðji á 241 höggi. Við óskum Guðrúnu innilega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og öðrum keppendum til hamingju með sinn árangur.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==