KYLFINGUR 2021
Hvenær varðstu félagi í GR? 1997. Af hverju varð golf fyrir valinu? Elti pabba á völlinn þá smástelpa í Eyjum. Vann í golfskálanum sem ungl ingur og fór þá í kennslu hjá John Nolan og þá varð ekki aftur snúið. Hver er forgjöfin í dag? Forgjöfin mín er 18,1 í dag en hækkar og lækkar eins og gengur og gerist á bestu bæjum. Korpan eða Grafarholt? Grafarholtið heillar alltaf, sérstaklega síðsumars. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Hefur gengið svona ágætlega. Stund um vel og stundum verr eins og gengur og gerist. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Svolítið neikvæð minning er mér efst í huga. 35 ára og eldri á Flúðum í lok síðustu aldar. Mér hafði gengið mjög vel fyrri daginn og vorum við tvær dömur í lokahollinu þann seinni. Allt rúllaði þetta mjög „smukt“ en Adam var ekki lengi í paradís. Par 3 hola sem ég man ekki hvar var en var allavega síðasta par 3 hola vallarins: 1. högg: í kargadrasli 2. högg: sandgryfja mjög djúp 3-5. högg: enn í sandgryfjunni 6. högg: yfir flöt 7. högg: vipp að flaggi 8. högg: í holu Lenti nú samt í öðru sæti. Ein saga er mér eftirminnileg. Við vorum að spila í Grafarholtinu 4 konur. Mikið var spjallað eins og gengur, stundum aðeins of mikið. Efir að við kláruðum eina brautina voru heitar umræður í gangi og á leiðinni á næsta teig tókum við eftir að ein daman var með flaggstöng síðustu holu í pokanum sínum. Þessu gleymi ég aldrei og rifja þetta oft upp í góðra vina hópi. Hefurðu farið holu í höggi? Já, það hef ég gert í þrígang. Fyrsta skiptið var á Írlandi, þá nýbyrjuð í golfi. Í annað skiptið á 6. holu á Korpunni (sjónum). Og í þriðja skipti í Bristol Eng landi. Það var 150 metra högg með mik illi fallhæð þar sem ég horfði á boltann rúlla ljúft í miðja holu með fjölda áhorfenda sem fögnuðu gríðarlega. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Það er eiginmaðurinn hann Hjálmar sem aldrei hefur farið holu í höggi. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Falcon´s Fire í Florida er mér ofarlega í huga, einstaklega fallegur völlur hann aður af Sir Nick Faldo. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Grafarholtið fallega er orðið mjög illa farið og allflestar brautir jafnvel hættu legar til gangs vegna misgengis. Margir teigar, aðallega kvenna, eru mjög leið inlegir. Einnig er félagafjöldi orðinn of mikill og oftar en ekki erfitt að fá rás tíma. Eitthvað að lokum? Vonandi fáum við hér á SV-horninu gott golfár. Við eigum það svo sannar lega skilið. ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Helga Ragnarsdóttir: BOLTAFÖR Á FLÖTUM Boltaför hafa verið áberandi á flötum félagsins í sumar og viljum við ítreka það við félagsmenn og kylfinga sem leika á völlum félagsins að lagfæra eftir sig boltaför sem myndast á flötum. Það er aldrei of oft minnst á það að ganga vel um vellina okkar og að við vinnum saman að því að gera góða velli enn betri. 54 I KYLFINGUR I
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==