KYLFINGUR 2021
Hvað kom til að þú svaraðir kalli GR? Þannig var mál með vexti að ég missti starfið mitt sem sölumaður vegna Covid 19. Þá datt mér í hug að hafa samband við Ómar fram kvæmdastjóra og tók hann vel í hugmyndina að fá mig til starfa og það er ekki leiðinlegt að geta starfað við áhuga málið. Hvernig kunnirðu svo við starfið? . Starfið er mjög skemmtilegt og gefandi, ég var að hitta um 200–300 manns á dag á öllum aldri. Vinnuaðstaða ræsa? Vinnuaðstaðan mætti vera betri og ég veit að hún verður löguð. Eftir reynslu sumarsins er þá eitthvað sem þú vilt að verði öðruvísi næsta sumar? Já það eru fullt af hlutum sem sem hægt er að gera betur og breyta. Þá tala ég bara fyrir mig, það mætti t.d. hafa Sjóinn sem seinni 9 þegar hann er hluti af 18 holum. Síðan myndi ég vilja að kylfingar myndu sníða sér stakk eftir vexti og spila á þeim teigum sem henta þeim en ekki að rembast á röngum teigum, ná ekki að koma sér fram fyrir hætturnar með teighöggi, þá er ég t.d. að tala um teighögg á 3., 14., 15., og 18. holu á Korpunni og það eru fleiri brautir. Ávallt vera tilbúinn þegar kemur að þér að slá og einnig að vera ekki að merkja boltann í mjög stuttum púttum, það eru hvort eð er margir búnir að stíga í púttlínuna þína yfir allan daginn. Ég benti nokkrum karlskynskylfingum að prufa að spila á rauðum eða bláum teigum sem myndi gera golfið þeirra mun skemmtilegra og bæta skorið, sem kom á daginn því margir hverjir komu til mín og þökkuðu mér fyrir ábend inguna, þeir hefðu fengið fugla og jafnvel örn. Við erum öll í golfi til að hafa gaman af, og ekki skemmir að setjast niður í skálanum eftir hring og ræða þessi pör, birdie og eagle sem urðu á hringnum. Kylfingar mega ekki taka það persónulega þegar við eftir litsmenn komum og biðjum þá að hraða leik, segja bara já Stjórn GR ákvað að efla eftirlit á völlum félagsins í sumar og fjölga eftirlitsmönnum úr fjórum í átta. Einn af þeim sem ráðnir voru til starfans var Jónas Hjartarson, alltaf kátur og hress og virtist brenna fyrir starfið á Korpunni. Kylfingur ákvað að taka hann tali og fá hans innsýn í starfið. Jónas Hjartarson eftirlitsmaður á Korpu I KYLFINGUR I 71
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==