KYLFINGUR 2021

72 I KYLFINGUR I og halda rösklega áfram. Svo er það nú þannig að það kemur fyrir að það getur verið hægt spil þá er um að gera að hringja í Golfverslunina og segja hvar fólk er þá getum við farið af stað á móti straumnum og skoðað hvar stíflan er og reynt að leysa hnútinn. Það er ekki alltaf hollið fyrir framan okkur sem er að tefja, þannig að gott er að draga andann og slaka á, við leysum vandann. Kylfingar mega einnig vera duglegir að staðfesta rástíma í appinu og afskrá sig með góðum fyrirvara svo að aðrir geti nýtt hann. Er eitthvað sem stjórn klúbbsins þarf að laga? Veit ekki hvort stjórnin þarf að laga eitthvað hjá sér en ég held að það væri ekki vitlaus hugmynd að stjórnarmenn skrái sig öðru hvoru random með kylfingum í klúbbnum, spila með þeim og inna þá eftir hvað þeim finnist um vellina okkar eða eitthvað sem betur mætti fara, svokallaða vettvangsransókn. Síðan mætti taka um­ ræðu á næsta stjórnarfundi um athyglis­ verðar hugmyndir félagsmanna ef ein­ hverjar eru. Eitthvað sem kylfingar þurfa að betrumbæta hjá sér? Já það er hellingur sem kylfingar geta lagað og á þetta ekki við um alla en þeir geta tekið það til sín sem eiga það. Umgengni um völlinn t.d. laga kylfuför, boltaför á grínum, setja brotin tí í boxið á teignum, raka bönkera, setja rusl í tunnur, ekki henda tóbakspúðum á völlinn, virða gönguleiðir, fara með kerru og golfpoka þar sem þú ferð útaf gríni og á næsta teig, og þegar kylfingar ljúka leik og eru að þrífa kerrur og skó sína að vera yfir ristinni en ekki til hliðar og blása af og vera svo að tuða hvað alltaf er sóðalegt í kringum þvottastöðina. Bera virðingu fyrir starfsmönnum á vellinum, ekki slá á vallarstarfsmenn við vinnu eða aðra kylfinga. Svo er gott að kylfingar séu mættir tímanlega hjá ræsi 10 mín. fyrir tímann því oft er hægt að ræsa fyrr út eða sameina holl. Það má allveg hleypa kylfingum framúr ef það er hægt, því að það er engin skömm, en í framhaldinu að halda í við hollið sem fer framúr. Síðan finnst mér klæðnaðurinn oft á tíðum hjá kylfingum ekki nógu snyrtilegur, eitthvað sem má laga. Þú ert sjálfur golfari, hver er forgjöfin? Já ég spila golf og er með 7,7 í forgjöf og lækkaði um einn heilann í sumar. Hafðirðu tíma fyrir golfið þitt í sumar? Já ég spilaði mikið golf í sumar í frítímanum og tók þátt í LEK-mótaröðinni og var einu sæti frá því að komast í lands­ liðið +54 með forgjöf, það kemur bara á næsta ári. Og ég spila yfirleitt nokkra hringi á hverju ári á bláum og rauðum teigum til að fá sjálfstraust og einnig til að fá fleiri pör og birdie á hring. Ertu svo bara í sófanum í vetur? Nei, það verð ég nú ekki, verð að vinna eitthvað í Básum í vetur, og svo reyni ég að slá nokkra bolta ef tími gefst til á vaktinni og vonandi kem ég betur undirbúinn fyrir næsta golfsumar. Hér er mynd sem er gott fyrir kylfinga að virða fyrir sér. Við hjá GR gætum sett upp sambærilegt skilti á okkar völlum fyrir kylfing til umhugsunar. Að sníða sér stakk eftir vexti er gamalt heilræði sem á vel við hér.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==