KYLFINGUR 2021

D agana 22. til 24. júlí var íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla og kvenna haldið sameiginlega af Golf­ klúbbi Reykjavíkur (Korpúlfsstaðir) og Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Sveitir Golfklúbbs Reykjavíkur voru skipaðar eftirfarandi leikmönnum: Kvennasveit: Berglind Björnsdóttir, Eva Karen Björnsdóttir, Auður Sigmundsdóttir, Nína Margrét Valtýsdóttir, Ásdís Valtýsdóttir, Bjarney Ósk Harðardóttir, Árný Eik Dagsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir. Karlasveit: Andri Þór Björnsson, Sigurður Bjarki Blumenstein, Viktor Ingi Einarsson, Jóhannes Guðmundsson, Tómas Eiríksson Hjaltested, Hákon Örn Magnússon, Böðvar Bragi Pálsson, Dagbjartur Sigurbrandsson. Kvennasveit GR Kvennasveitin var í riðli með GKG, GO og GSS. Fyrsti leikur var gegn Golfklúbbnum Oddi sem vannst með fullu húsi, 5-0. Seinni leikur dagsins var gegn Golfklúbbi Skagafjarðar sem vannst einnig 5-0. Gott dagsverk hjá stelpunum sem voru ákveðnar að láta verkin tala frá byrjun. Eftir fyrstu tvo leikina var GR með 2 stig líkt og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar en liðin áttu eftir að leika á móti hvort öðru um efsta sæti riðilsins. Leikurinn gegn Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar var erfiður en eftir að öllum leikjum var lokið stóðu okkar stelpur uppi sem sigurvegarar leiksins, 3 1 / 2 vinningur gegn 1 1 / 2 vinning GKG og þar af leiðandi efsta sæti riðilsins. Í undanúrslitum lék kvennasveitin gegn ungu liði Golfklúbbs Akureyrar. Okkar stelpur byrjuðu sterkt og unnu fjórmenningin nokkuð örugglega auk þess að Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir sigraði sinn leik. Endaði leikurinn með sigri GR 4 1 / 2 vinningur gegn hálfum vinningi GA. Stelpurnar komnar í úrslit gegn sterku liði Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Úrslitaleikurinn var spennandi frá byrjun. Fjórmenningurinn sem var spilaður af Nínu Margréti Valtýsdóttir og Árný Eik Dagsdóttir endaði með jafntefli í mjög sveiflukenndum leik. Berglind Björnsdóttir leiddi tví­ menninginn en hún hóf leikinn af kraft og lét það forskot sem hún náði í byrjun aldrei af hendi. Eva Karen Björnsdóttir lék einnig skínandi gott golf og eftir hörkuleik stóð hún uppi sem sigurvegari þegar tvær holur voru eftir. Ásdís Valtýsdóttir þurfti að lúta í lægra haldi gegn reynsluboltanum og fyrrverandi Íslandsmeistara, Nínu Björk Geirsdóttur, en leikurinn var í járnum allan tímann og endaði á 17. holu. Síðust í tvímenningi var Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir og eftir spennandi leik, þar sem aldrei munaði meira en einni holu, hafði Jóhanna Lea sigur á 18. holu. Stelpurnar sigruðu því Golfklúbb Mosfellsbæjar 3 1 / 2 gegn 1 1 / 2 vinningi og náðu að verja Íslandsmeistaratitilinn frá því árinu áður og þriðja árið í röð. Glæsilega gert hjá þessum flotta hópi! Karlasveit GR Mikill hugur var í karlasveit GR að sigra Íslandsmót golfklúbba karla enda ekki staðið uppi sem sigurvegarar síðan 2011. Þó var vitað að leiðin að titlinum yrði erfið þar sem allir klúbbarnir voru með hörkusveitir sem erfitt væri að sigra nema með góðum leik. Golfklúbbur Reykjavíkur lék í B riðli ásamt GV, GS og GK. Fyrsti leikur var gegn Golfklúbbi Vestmannaeyja sem vannst 4-1. Seinni leikur dagsins var gegn GS en sá leikur endaði 4 1 / 2 gegn 1 / 2 GR í vil. Eftir fyrsta dag trónaði GR á toppi riðilsins með tvö stig en GV og GS komu á eftir jafnir í 2. sæti með 1 stig hvor klúbbur. Lokaleikur riðilsins var gegn GK. Leikurinn byrjaði ekki vel þar sem báðir fjórmenningar GR töpuðust en allir þrír tvímenningarnir unnust og GR sigraði GK því 3-2. GR endaði því í efsta sæti riðilsins og GV í öðru sæti. Í undanúrslitum mættu okkar menn skemmtilegu liði Golfklúbbs Selfoss. Úr varð hörkuleikur og mikil spenna. Fjórmenningarnir sigruðu báðir sína leiki af nokkru öryggi en annað var upp á teningum í tvímenningum. Mikil spenna ríkti þar en tveir af þeim enduðu í bráðabana. Enduðu leikar á þann veg aðDagbjartur Sigurbrandsson sigraði sinn leik á 21. holu og þar af leiðandi var GR búið að sigra viðureignina og komið í úrslit þar sem mótherjinn voru ríkjandi meistarar, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar. Eins og við mátti búast var úrslitaleikurinn hörkurimma þar sem úrslit komu ekki í ljós fyrr en á síðustu holu. Jóhannes Guðmundsson og Tómas Eiríksson Hjaltested voru í fyrri fjórmenning en sá leikur lyktaði með naumu tapi eftir frábæra endurkomu þeirra félaga. Í seinni fjórmenning léku Sigurður Bjarki Blumenstein og Böðvar Bragi Pálsson. Sá leikur var ávallt í járnum þar til í lokin þegar þeir félagar unnu tvær holur í röð og endaði leikurinn á 17. holu. Fyrstur tvímenninga var Andri Þór Björnsson sem tapaði á 17. holu gegn Aroni Snæ Júlíussyni en óhætt var að 82 I KYLFINGUR I

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==