KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 83 Evrópumót golfklúbba í karlaflokki fór fram á Troia Golf vellinum í Portúgal dagana 21.–23. október sl. Golfklúbbur Reykjavíkur, Íslands­ meistar golfklúbba 2021, tók þar þátt ásamt 23 öðrum golfklúbbum. Þrír leikmenn voru í hverju liði. Keppt var í höggleik og tvö bestu skorin töldu í hverri umferð. Lið GR var þannig skipað: Hákon Örn Magnússon, Jóhannes Guðmundsson og Viktor Ingi Einarsson. Arnór Ingi Finnbjörnsson var liðs­ stjóri. GR endaði í 9. sæti á 16 höggum yfir pari samtals. Rosendaelsche frá Belgíu fagnaði EM-titlinum á 2 höggum undir pari. Golf de Biarritz Le Phare frá Frakklandi varð í öðru sæti á pari vallar samtals og danski klúbburinn Smørum endaði í þriðja sæti á 5 höggum yfir pari vallar. 1. keppnisdagur: Jóhannes Guðmundsson, 72 högg Hákon Örn Magnússon, 77 högg Viktor Ingi Einarsson, 77 högg 2. keppnisdagur: Jóhannes Guðmundsson, 78 högg Hákon Örn Magnússon, 75 högg Viktor Ingi Einarsson, 72 högg 3. keppnisdagur: Jóhannes Guðmundsson, 75 högg Hákon Örn Magnússon, 83 högg Viktor Ingi Einarsson, 76 högg Golfklúbbur Reykja­ víkur endaði í 9. sæti á EM golfklúbba sem fór fram í Portúgal Lið GR: F.v.: Jóhannes Guðmundsson, Hákon Örn Magnússon, Arnór Ingi Finnbjörnsson og Viktor Ingi Einarsson. segja að báðir tveir voru að leika glæsilegt golf. Næstur í tvímenning var Dagbjartur Sigurbrandsson sem sigraði sinn leik á 15. holu en hann gaf strax tóninn með erni á fyrstu holu, lék næstum óaðfinnanlega eftir það og kláraði sinn leik á 15. holu. Staðan jöfn og spennan mikil. Síðasta tvímenning fyrir GR lék Hákon Örn Magnússon en sú viðureign var spennuþrungin og mátti heyra saumnál detta. Eftir fyrri 9 holurnar var Hákon þrjár holur niður og brekkan brött. Hinsvegar með frábærri spilamennsku á næstu fimm holum sneri hann viðureigninni í tvær holur sér í vil og sigraði að lokum á 18. holu. Karlasveitin stóð uppi sem sigurvegari úrslitaleiksins gegn sterku liði GKG 3-2 og þar af leiðandi Íslandsmeistarar golfklúbba karla. Ennfremur hafði sveitin lokið 10 ára eyðimerkurgöngu klúbbsins karlamegin í þessu móti. Golfklúbbur Reykjavíkur varð því tvöfaldur Íslandsmeistari golfklúbba í 1. deild en síðast var það árið 2011 þegar karlasveitin sigraði síðast. Frábær árangur hjá okkar fólki. Ekki má gleyma liðsstjórum liðanna, Arnóri Inga Finnbjörnssyni og Berglindi Björnsdóttur sem stóðu sig með fádæmum vel og þeim færðar miklar þakkir fyrir þeirra framlag og þátt í sigri sveitanna.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==