KYLFINGUR 2021

H ákon Örn Magnússon gaf strax tóninn en hann stóð uppi sem sigurvegari á fyrsta móti GSÍ móta­ raðarinnar, ÍSAM mótið, sem var haldið í Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Lék Hákon hringina þrjá á sex höggum undir pari en hann lék einu höggi betur en næstu menn þar á meðal Tómas Eiríksson Hjaltested. Á öðru GSÍ móti sumarsins, B59 mótið sem haldið var á Golf­ klúbbnum Leyni, endaði Ragnhildur Kristinsdóttir í 2. sæti en upp úr stóð lokahringur hennar er hún spilaði hringinn á 9 höggum undir pari eða 63 höggum. Enginn kylfingur hefur afrekað að spila á svo lágu skori á GSÍ mótaröðinni. Á þriðja GSÍ móti sumarsins sigraði Berglind Björnsdóttir. Íslandsmótið í holukeppni var haldið í Þorlákshöfn og gerðu okkar kylfingar gott mót. Karlamegin endaði Andri Þór Björnsson í 3. sæti eftir hörkuleik gegn Andra Má Óskarssyni en leikurinn endaði á 20. holu. Kvennamegin varð Eva Karen Björnsdóttir í 2. sæti en hún þurfti að lúta í lægra haldi gegn Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Helga Signý Pálsdóttir endaði í 4. sæti eftir tap gegn Huldu Clöru Gestsdóttir í leik um 3. sætið. Ragnhildur Kristinsdóttir varð sigurvegari í Hvaleyrarbikarnum sem var fjórða mót GSí mótaraðarinnar. Lék hún hringina þrjá á fimm höggum yfir pari og vann með níu högga mun. Berglind Björnsdóttir einnig úr GR endaði jöfn í 2. sæti eftir glæsilegan lokahring upp á 68 högg. Íslandsmótið í höggleik var haldið að þessu sinni á Golfklúbbi Akureyrar. Hjá konunum var Ragn­ hildur Kristinsdóttir best GR kvenna en hún varð í 2. sæti. Berglind Björnsdóttir og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir luku leik jafnar í 3. sæti ásamt öðrum kylfingi. Hjá körlunum var það Jóhannes Guðmundsson sem lék best GR-inga en hann endaði mótið í 2. sæti. Ragnhildur Kristinsdóttir varð stigameistari GSÍ 2021 og Berglind Björnsdóttir endaði í 3. sæti. Helstu afrek GR-inga 2021 Mynd /seth@golf.is 84 I KYLFINGUR I

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==