KYLFINGUR 2021
I KYLFINGUR I 97 Helga Signý Pálsdóttir hlýtur Háttvísibikarinn 2021 Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá einstaklingur sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Helga Signý Pálsdóttir hlýtur viðurkenninguna í ár en hún er mikil og sterk fyrirmynd fyrir aðra iðkendur, mjög dugleg við æfingar og hefur sýnt jafnar og góðar framfarir á árinu. Helga Signý er frábær fulltrúi Golfklúbbs Reykjavíkur. Hún sýndi miklar framfarir í leik sínum á síðasta tímabili og lækkaði forgjöf sína úr 5,6 í 2,7 á keppnistímabilinu. Helga Signý lækkaði meðalskor sitt um tvö högg þrátt fyrir að spila mun erfiðari keppnis dagskrá sem innihélt meðal annars mót eins og European Young Masters og Tulip Chal lenge. Helga Signý spilaði fyrir hönd Íslands á Evrópumóti stúlknalandsliða sem var haldið á Montado Golf í Portúgal. Ennfremur var hún valin til að keppa á European Young Masters en leikið var á Vierumaki golf vellinum í Finnlandi Helga Signý er mikil fyrirmynd þegar kemur að mætingu á æfingar, ástundun og hegðun innan sem utan vallar og er mjög vel að Háttvísibikarnum komin. Við óskumHelgu Signý innilega til hamingju með Háttvísibikarinn 2021. Þetta er í 18. skipti sem bikarinn er af hentur og þeir sem hafa áður fengið út nefninguna eru eftirfarandi kylfingar: 2004 Þórður Rafn Gissurarson 2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir 2006 Guðni Fannar Carrico 2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2009 Andri Þór Björnsson 2010 Guðmundur Á. Kristjánsson 2011 Sunna Víðisdóttir 2012 Ragnhildur Kristinsdóttir 2013 Saga Traustadóttir 2014 Ingvar Andri Magnússon 2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir 2016 Dagbjartur Sigurbrandsson 2017 Böðvar Bragi Pálsson 2018 Elvar Már Kristinsson 2019 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir 2020 Tómas Eiríksson Hjaltested
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==