KYLFINGUR 2021
Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur var haldinn á Korpúlfsstöðum á mánu daginn 6. desember og var ágætis þátttaka meðal félagsmanna. Allir þurftu að framvísa neikvæðu hraðprófi við mætingu. Formaður félagsins fór yfir skýrslu stjórnar og fór yfir þau verkefni sem áhersla hefur verið lögð á á árinu. Harpa Ægisdóttir fjármálastjóri kynnti ársreikning félagsins og fór yfir fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Fundarstjóri var Ólafur Arinbjörn Sig urðsson. Björn Víglundsson kynnti á dögunum að hann myndi hætta sem formaður GR. Gísli Guðni Hall bauð sig fram til formanns en hann hefur setið í stjórn félagsins frá 2019. Kjörnefnd bárust ekki önnur framboð til formanns og var Gísli því sjálfkjörinn á fundinum. Brynjar Jóhannesson, Kristín Ey steinsdóttir og Ólafur William Hand voru kosin til tveggja ára á aðalfundi 2020 og sitja því áfram í stjórn. Elín Sveinsdóttir, Guðmundur Arason og Margeir Vilhjálmsson voru sjálfkjörin stjórn til næstu tveggja ára. Í varastjórn gáfu kost á sér Arnór Ingi Finnbjörns son, Helga Friðriksdóttir og Þórey Jóns dóttir. Golfklúbbur Reykjavíkur vill þakka Birni Víglundssyni fyrir vel unnin og óeigingjörn störf í þágu félagsins í öll þau ár sem hann hefur sinnt stjórnar störfum þar af 7 árum sem formaður. Björn fékk afhent gullmerki félagsins sem þakkarvott á aðalfundi. Stefán Már Stefánsson vék úr vara stjórn að eigin ósk. Honum eru þökkuð vel unnin störf í þágu félagsins. Hagnaður á starfsárinu var 99,3 milljónir króna til samanburðar við 102,5 milljónir árið á undan. Tekjur námu alls 567 milljónum samanborið við 544 milljónir á árinu 2020. Golf klúbbur Reykjavíkur annaðist rekstur tveggja golfvalla á árinu ásamt rekstri Bása. Eins og félagsmenn hafa orðið varir Gísli Guðni Hall nýr formaður félagsins AÐALFUNDUR GR 2021 Nýkjörinn formaður GR, Gísli Guðni Hall, fer hér yfir helstu verkefni nýrrar stjórnar sem framundan eru. Í máli hans kom ma. fram að 20% kylfinga á Íslandi nýttu 50% af lausum rástímum. Finna þyrfti leið til að jafna þetta eins og kostur er. 98 I KYLFINGUR I
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==