KYLFINGUR 2021
I KYLFINGUR I 99 við hefur verið hafist handa við endur bætur á Grafarholtsvelli. Framkvæmdir við nýja inniæfingaaðstöðu eru áformaðar. Viðræður við Reykjavíkur borg um samstarf við fjármögnun eru á góðu skriði og er það forsenda fyrir þessum fyrirhuguðu framkvæmdum. Einnig eru fyrirhugaðar frekari fram kvæmdir á báðum völlum félagsins. Framkvæmdasjóður félagsins stendur vel og spennandi tímar framundan. Fjárhagsáætlun GR 2022 var sam þykkt á aðalfundi og verða félagsgjöld hækkuð um 5% á næsta tímabili, for sendur hækkunar snúa aðallega að launaþróun og hækkun aðfanga eins og áburðar sem hefur hækkað um 30- 80% í innkaupum. Gjaldskrá fyrir kom andi tímabil verður eftirfarandi: Félagsmenn 19-26 ára, kr. 60.000 Félagsmenn 27-70 ára, kr. 120.000 Félagsmenn 71-74 ára, kr. 90.000 Félagsmenn 75 ára og eldri, kr. 90.000 Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 60.000 *enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár Golfklúbbur Reykjavíkur notast áfram við Nóra félagakerfi við skráningu og innheimtu félagsgjalda. Skráning greiðslufyrirkomulags fer fram í gegn um félagavef https://grgolf.felog.is/ og þurfa félagsmenn að skrá sig inn til að ráðstafa greiðslutilhögun. Áfram er boðið upp á það greiðslufyrirkomulag sem hefur verið undanfarin ár – allt að 5 skipti með kröfum í banka eða allt að 10 skipti með dreifingu á greiðslukort. Leiknir hringir á árinu voru 114.012 samanborið við 155.555 árinu á undan og fækkaði því verulega á milli ára. Tímabilið var styttra í báða enda þar sem veður var síðra í ár heldur en undanfarin tvö ár og var af þeim sökum minna spilað á völlum GR. Þessi mikla aukning sem varð árið 2020 má tengja við áhrif faraldursins sem gerði það að verkum að félagsmenn voru meira heima við og spiluðu almennt meira golf. Vinavellir voru vel sóttir af félags mönnum en engu að síður varð fækk un einnig í leiknum hringjum þar sem einnig má tengja við veðurfar. Leiknir hringir á vinavöllum voru alls 6.180. Golfklúbbur Reykjavíkur vill koma fram þökkum til Ólafs Arinbjarnar fundarstjóra fyrir faglega og góða fundarstjórn og félagsmönnum fyrir sína þátttöku. Stjórn, framkvæmdastjóri og starfs fólk klúbbsins þakkar félagsmönnum fyrir gott starfsár. Óttar Yngvason gagnrýndi stjórn GR fyrir að hafa ekki kynnt félagsmönnum fyrir ætlun um að samþykkja byggingu tveggja húsa við Krókháls á lóð GR. Taldi að GR ætti ekki að standa í lóðabraski með Reykja víkurborg. Fráfarandi formaður GR, Björn Víglundsson, var sæmdur gullmerki félagsins. Jón B. Stefánsson óskaði eftir að stjórn félagsins leggði áherslu á að kynna golfið fyrir skólabörnum með það að markmiði að efla barna- og unglingastarf GR. Gestur Jónsson benti stjórninni á að virða lög félagsins og ákveða hámarksfjölda félagsmanna þannig að aðgengi að völlunum sé þolanlegt.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==