Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 16 25. gr. □ 1 Brot gegn ákvæðum laga þessara, reglum settum samkvæmt þeim og ákvæðum leyfisbréfa varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau að auki varða fangelsi allt að sex árum. □ 2 Við fyrsta brot skal sekt eigi nema hærri fjárhæð en 4.000.000 kr. eftir eðli og umfangi brots. Við ítrekað brot skal sekt eigi nema lægri fjárhæð en 400.000 kr. og eigi hærri fjárhæð en 8.000.000 kr., sömuleiðis eftir eðli og umfangi brots. □ 3 Beita skal ákvæðum laga um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla vegna brota gegn lögum þessum eftir því sem við á. 26. gr. □ 1 Sektir má jafnt gera lögaðila sem einstaklingi. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 25. gr. má ákvarða lögaðila sekt þótt sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Með sama skilorði má einnig gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa hafa gerst sekir um brot. □ 2 Tilraun og hlutdeild í brotum á lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum. 27. gr. … 1) 1) L. 88/2008, 233. gr. Ákvæði til bráðabirgða. I. … 1) 1) L. 47/2017, 1. gr. II. … 1) 1) L. 48/2014, 8. gr. III. … 1) 1) L. 48/2014, 8. gr. IV. … 1) 1) L. 48/2014, 8. gr. [V. … ] 1) 1) L. 72/2016, 5. gr. [VI. … 1) ] 2) 1) L. 48/2014, 8. gr. 2) L. 21/2007, 2. gr. [VII. □ 1 [Ráðherra] 1) getur á fiskveiðiárunum 2009/2010 [til 2017/2018] 2) bundið meðferð afla– heimilda ákveðnum skilyrðum eða ákveðið að óheimilt sé að framselja eða ráðstafa með öðrum hætti aflaheimildum úr einstökum sveitarfélögum eða byggðarlögum þegar um er að ræða umtalsverðan hluta aflaheimilda í viðkomandi sveitarfélagi eða byggðarlagi, a.m.k. fimmtung eða meira, og ætla má að framsal eða önnur ráðstöfun þeirra út fyrir sveitarfélagið eða byggðarlagið hafi veruleg neikvæð áhrif í atvinnu- og byggðalegu tilliti. Handhafa aflahlutdeildar (aflaheimildar) ber að tilkynna Fiskistofu ef áformað er að framselja eða ráðstafa með öðrum hætti aflaheimildum frá sveitarfélagi eða byggðarlagi, [mánuði] 3) áður en umrætt framsal eða ráðstöfun á að fara fram.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==